Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Þrír slösuðust þegar litboltasprengju var kastað inni í lest Markús Þ. Þórhallsson Lögregla handtók manninn þegar lestin nam staðar í Bonn. epa Þrír slösuðust lítillega þegar karlmaður varpaði litboltaboltasprengju inni í farþegalest á leið milli þýsku borganna Köln og Frankfurt. Bild segir manninn hafa mundað hníf og hótað árás. Nokkrum farþegum hafi tekist að yfirbuga hann og læsa inni á salerni þar sem hann sat uns hann var handtekinn í Bonn. Um það bil fimm hundruð farþegar yfirgáfu lestina þar. Fyrir 30 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Orion-farinu þeytt af sporbaug jarðar í átt til tunglsins í nótt Áhöfn Artemis II er nú á leið til tunglsins eftir að hafa hringsólað jörðu. Öflugar eldflaugar Orion-farsins þeyttu því af stað í nótt. Ferðin að tunglinu tekur 3 sólarhringa og leiðangurinn alls 10. Forstjóri NASA segir áhöfninni líða vel. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Utanríkisráðherrar Íslands og Bandaríkjanna segja brýnt að efla öryggis- og varnarmálasamstarf Utanríkisráðherra Íslands og varautanríkisráðherra Bandaríkjanna segjast sammála um að efla beri samstarf ríkjanna í öryggis- og varnarmálum. Íslenski ráðherrann sagði samstöðu innan NATÓ mikilvægari en nokkru sinni fyrr. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Stríðsmálaráðherrann víkur yfirmanni landhersins til hliðar Fjöldi háttsettra yfirmanna Bandaríkjahers hefur hætt störfum eða verið rekinn á síðara kjörtímabili Donalds Trump forseta. Stríðsmálaráðherrann bað yfirmann í landher að hverfa á braut í gær. Það er talið gert til að auka fylgispekt hersins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björgunarsveit kom snjóruðningstæki sem sat fast til bjargar Björgunarsveitir hafa aðstoðað fjölda ökutækja, þar á meðal snjóruðningstæki, sem sátu föst í kvöld, þá aðallega á norðaustur horni landsins þar sem Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular viðvaranir. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestfirðir Ofanflóðvarnir vörðu Flateyri í snjóflóði Ofanflóðavarnir við Flateyri sem reistar voru síðasta sumar vörðu bæinn frá snjóflóði síðustu helgi. Nú stendur til að verja höfnina, til að tryggja örugga undankomuleið þegar hætta steðjar að. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Ásgeir og Tristan unnu brons á EM Ásgeir Karl Gústafsson og Tristan Máni Nínuson unnu brons í tvímenning á Evrópumóti ungmenna í keilu. Þetta er í þriðja sinn sem Ísland vinnur til verðlauna á mótinu. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Keflavík vann í spennutrylli gegn Val Keflavík leiðir í einvígi sínu gegn Val í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir spennandi lokakafla. Þá vann Tindastóll að lokum öruggan sigur gegn ÍR sem veittu þó ágætis mótspyrnu. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Haukar í undanúrslitin og mæta FH Haukar eru komnir í undanúrslit Íslandsmóts karla í handbolta eftir að hafa unnið Aftureldingu eftir oddaleik í einvígi liðanna. Haukar unnu öruggan 32-24 sigur. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Gettu betur Verzló áfram í úrslit Gettu betur eftir stórsigur á ME Verzlunarskóli Íslands sigraði Menntaskólann á Egilsstöðum í seinustu viðureign undanúrslita Gettu betur. Í næstu viku mætir Menntaskólinn í Reykjavík Verzlunarskólanum í úrslitaviðureign kepnninnar í Háskólabíói. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Nær óhugsandi að Framsókn detti út af þingi Prófessor í stjórnmálafræði segir nær óhugsandi að Framsókn detti út af þingi. Framsóknarflokkurinn mælist í fyrsta sinn utan þings í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Mönnuð tunglferð afrakstur áratuga af undirbúningi og vinnu Geimskot NASA í gær var afrakstur áratuga vinnu, samkvæmt íslenskum vísindamanni sem starfaði hjá geimferðastofnuninni. Hann telur mannkynið verða komið með bækistöð á tunglinu á næstu 15 árum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Kreml beygir netið undir sig Stjórnvöld í Rússlandi hafa hert enn frekar aðgengi landsmanna að netinu og ætla að velja sérstaklega þær vefsíður sem verða alltaf aðgengilegar. Truflanir sem hafa verið á aðgengi að netinu hafa haft mikil áhrif á daglegt líf almennings. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Framsókn mælist ekki með mann á þingi Framsóknarflokkurinn mælist í fyrsta sinn utan þings í nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Einungis fimm flokkar næðu inn manni, yrði gengið til kosninga nú. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Færri nýta sér neyðarskýli borgarinnar Til skoðunar er hvort þörf sé á gistiskýlum á vegum Reykjavíkurborgar vegna minni aðsóknar. Deildarstjóri segir að betra aðgengi að varanlegu húsnæði og samþætting þjónustu vera að skila sér. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Oddviti Samfylkingarinnar á Ísafirði hættir við framboð eftir harðar deilur Oddviti Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ hefur sagt af sér eftir að ósætti kom upp innan flokksins. Hann segir flokksmeðlimi hafa borið á sig vantraust. Nýr oddviti segir að ekki hafi verið hægt að halda áfram með óbreytt ástand. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Innanlandsflugi aflýst en ferðum bætt við á morgun Nær öllum innanlandsflugferðum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar var í dag aflýst vegna veðurs. Flogið var til og frá Ísafirði síðdegis. Til stendur að fleiri flugferðum verði bætt við til að koma farþegum á áfangastað. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Búið að loka bæði Fjarðarheiði og veginum um Fagradal Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Fjarðarheiði og veginum um Fagradal hefur verið lokað vegna óveðurs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi varð smávægilegur árekstur á veginum um Fagradal. Engin slys urðu á fólki. Hringvegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi er einnig lokaður vegna óveðurs. Snjó blásið burt af Fjararheiði, myndin er úr safni. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi hjá Landsbjörgu, segir daginn hjá björgunarsveitum hafa verið tiltölulega rólegan. Björgunarsveitin Tindur á Ólafsfirði var kölluð út í morgun þar sem þakplötur og annað losnaði í vindi. Þæfingsfærð hefur verið á Snæfellsnesi í dag og í hádeginu var björgunarsveit kölluð út í hádeginu vegna bíls sem var fastur við Öndverðarnes. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump sagður hafa vikið Pam Bondi úr embætti Dagný Hulda Erlendsdóttir Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vikið Pam Bondi dómsmálaráðherra úr embætti. Þetta hefur fjölmiðillinn Reuters eftir heimildum sínum innan Hvíta hússins. Hann er sagður hafa verið ósáttur við frammistöðu hennar í embætti, svo sem í Epstein-málinu. Bondi hefur verið sökuð um að hafa ekki birt öll skjöl tengd málinu. Þá er Trump einnig sagður hafa verið ósáttur við seinagang Bondi við að sækja til saka gagnrýnendur og andstæðinga sem hann vildi fá fyrir dóm. CNN og aðrir bandarískir fjölmiðlar greina frá því að Todd Blanche, sem gegnt hefur embætti varadómsmálaráðherra og verið lögmaður Trumps, taki við stöðu starfandi dómsmálaráðherra. Pam Bondi hefur verið dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Donalds Trumps. EPA / JIM LO SCALZO Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Skorað á tveimur völlum í sama leiknum — aðeins gerst einu sinni áður? Í dag gerðist það að Fylkir skoraði mark á tveimur mismunandi völlum í einum og sama fótboltaleiknum. Slíkt hefur að minnsta kosti gerst einu sinni áður. Leikur þeirra gegn KFA í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla var færður úr Árbæ í Hafnarfjörð. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hryðjuverkamálið Hryðjuverkamálið tekið fyrir í Landsrétti í maí Hryðjuverkamálið verður tekið fyrir í Landsrétti í maí. Hæstiréttur ómerkti dóm Landsréttar í málinu í mars og vísaði því aftur þangað. Hæstiréttur fann að fjölmörgum þáttum í dómi Landsréttar í málinu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Stöðva þarf spíral dauða og eyðileggingar í Mið-Austurlöndum Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn standa á barmi stríðs sem gæti breiðst út til allra Mið-Austurlanda. Hann hvetur til friðsamlegra lausna og fordæmir árásir á almenna borgara. 2. apríl 2026 kl. 14:30INNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Nýir svartir kjörkassar úr plasti teknir í notkun í vor Kjósendum mæta nýir kjörkassar í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Þeir eru úr plasti og eiga að leysa viðarkassana af hólmi og létta störf kjörstjórna. 2. apríl 2026 kl. 14:16ÍÞRÓTTIR Fótbolti Kyngir niður í Kópavogi og leik frestað Leikur Breiðabliks og FH í Meistarakeppni kvenna í fótbolta var stöðvaður vegna snjókomu og leiknum frestað til morguns. Bikarleikur Fylkis og KFA var hins vegar færður innandyra eftir að leikurinn var hafinn. 2. apríl 2026 kl. 13:45INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fagnar viðhaldi á Hvalfjarðargöngum en ekki lengd lokunar Bæjarstjóri Akraness segir að fyrirhugaðar lokanir í Hvalfjarðargöngum að nóttu til í apríl og maí hafi mikil áhrif á íbúa og fyrirtæki. Hann vonast til þess að Vegagerðin geti boðið upp á fylgdarakstur meðan á þeim stendur. 2. apríl 2026 kl. 13:29INNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Nýjar tröppur óskast við Ráðhús Árborgar Tröppurnar við Ráðhús Árborgar hafa verið lokaðar í vetur af öryggisástæðum. Framkvæmdir eiga að hefjast að loknu útboði eftir páska. 2. apríl 2026 kl. 12:55INNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Gjafmildir Grímseyingar gefa páskaegg Kvenfélagið Baugur og Kiwanisklúbburinn í Grímsey gáfu hátt í 200.000 krónur til matargjafa á Akureyri fyrir páskana. Peningarnir eru ætlaðir til páskaeggjakaupa þeirra sem minna mega sín. 2. apríl 2026 kl. 12:43INNLENDAR FRÉTTIR Veður Útlit fyrir gott páskaveður eftir daginn í dag Veðrið tekur að lægja á stórum hluta landsins síðdegis og í kvöld, að sögn veðurfræðings Vegagerðarinnar. Viðbúið er að vegum á Norður- og Austurlandi verði lokað síðdegis. 2. apríl 2026 kl. 12:21ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar skipuleggja harðar gagnárásir eftir hótanir Trumps Dagný Hulda Erlendsdóttir