Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Betri staða mjólkinni að þakka

Read Full Article →

Innlent | mbl | 28.3.2026 | 15:52 Betri staða mjólkinni að þakka „Skýringin virðist fyrst og fremst vera sú að núna mælist hærra joðinnihald í mjólk og mjólkurvörum. Í kringum 2018 var farið að nota efnablöndur til sótthreinsunar á spenum kúa sem innihalda mikið joð og breyttir og markvissari fóðrunarhættir hafa líka áhrif,“ segir Jóhanna. mbl.is/Eggert Jóhannesson Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Nýjum aðferðum við sótthreinsun á spenum kúa er meðal annars að þakka að joðbúskapur Íslendinga er almennt betri en áður var talið. Joð er snefilefni sem nauðsynlegt er að fá úr fæðu til að mynda skjaldkirtilshormón. Það er sérlega mikilvægt á meðan meðgöngu stendur þar sem alvarlegur joðskortur á meðgöngu getur valdið skaða á þroska barnsins og vægari skortur tengist einnig lakari vitrænni útkomu. Því er athyglisvert að konur á barneignaraldri eru sá samfélagshópur sem stendur veikast þegar kemur að joðneyslu, en meðalneysla kvenna á aldrinum 18–39 ára er rétt við viðmiðunarmörk. Frétt af mbl.is Kanna þörf á joðbættu salti í brauðframleiðslu Voru í raun rangar Árið 2024 sendi embætti landlæknis frá sér tilkynningu þar sem fram kom að vegna minni joðneyslu fullorðinna væri til skoðunar að nota joðbætt salt við brauðframleiðslu á Íslandi. Byggði þetta mat á síðustu landskönnun á mataræði hér á landi sem framkvæmd var á árunum 2019 til 2021, en þar kom í ljós að joðneysla hefur minnkað um 20% að meðaltali. Nú hefur hins vegar komið í ljós að í heildina virðist staðan vera nokkuð góð að meðaltali og að niðurstöðurnar sem áður höfðu verið kynntar voru í raun rangar. Jóhanna Eyrún Torfadóttir. Ljósmynd/Háskóli Íslands Joð notað í sótthreinsunina Í samtali við mbl.is segir Jóhanna E. Torfadóttir, verkefnisstjóri næringar á lýðheilsusviði Landlæknis, að skýringin á þessu sé að nýjar rannsóknir sýni að joðinnihald í mjólk á Íslandi sé umtalsvert hærra en áður var talið. „Skýringin virðist fyrst og fremst vera sú að núna mælist hærra joðinnihald í mjólk og mjólkurvörum. Í kringum 2018 var farið að nota efnablöndur til sótthreinsunar á spenum kúa sem innihalda mikið joð og breyttir og markvissari fóðrunarhættir hafa líka áhrif,“ segir Jóhanna. Hún bætir við að þetta dæmi sýni fram á mikilvægi þess að mæla reglulega efnainnihald íslenskra matvæla, en oft er fjármagn til slíkra rannsókna af skornum skammti. Einn hópur stendur verst Í uppfærðum niðurstöðum landskönnunar á mataræði frá 2019 til 2021 er meðalneysla joðs um 243 µg á dag, sem er bæði yfir ráðlögðum dagskammti, 150 µg/dag, og meðalþörf, 120 µg/dag. Að sögn Jóhönnu stendur einn hópur þó veikast þegar kemur að joðneyslu. „Konur á aldrinum 18–39 ára virðast standa veikast. Þær eru með meðalneyslu um 150 µg á dag, sem er rétt við ráðlagðan dagskammt. Þótt meðaltalið sé ásættanlegt bendir dreifingin til þess að hluti þessa hóps sé með heldur lága joðneyslu,“ segir hún Getur valdið skaða á þroska barnsins Spurð hvað valdi minni joðneyslu þessa hóps segir Jóhanna skýringuna liggja í því að konur á þessum aldri borði minna af helstu joðgjöfum Íslendinga, mjólk, mjólkurvörum og fiski. „Í landskönnunarskýrslunni kom fram að það var bara um 1% kvenna á barneignaraldri sem borða fisk í samræmi við ráðleggingar, það er tvisvar til þrisvar í viku.“ Það er sérstaklega mikilvægt að einmitt þessi hópur innbyrði nægilegt joð því snefilefnið er sérstaklega mikilvægt fyrir þroska heila og taugakerfis fósturs og ungra barna. „Alvarlegur joðskortur á meðgöngu getur valdið skaða á þroska barnsins og vægari skortur tengist einnig lakari vitrænni útkomu. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að fylgjast reglulega með joðinntöku kvenna á barneignaraldri, á meðgöngu og við brjóstagjöf,“ segir Jóhanna. Þá ítrekar hún sömuleiðis mikilvægi þess að allir þeir sem borða lítið eða ekkert af mjólkurvörum og hvítum fiski þurfi að huga sérstaklega að joðneyslu sinni, til dæmis með inntöku fjölvítamína sem innihalda joð eða með því að nota joðbætt salt. Einnig er hægt að kaupa til dæmis joðbætta jurtamjólk. Sérstaða Íslands Spurð hvernig joðneysla Íslendinga sé í samanburði við nágrannaþjóðir segir Jóhanna: „Við höfum alltaf haft smá sérstöðu í því að fara ekki í sérstakt joðprógramm þar sem fiskneysla hefur verið mikil á Íslandi.“ Hún bætir við að Norðmenn, sem sömuleiðis neyta mikils fisks, hafi nýlega byrjað með sérstakt joðprógram þar sem þeir joðbæta brauð, en þar í landi séu menn nokkuð áhyggjufullir yfir niðurstöðunum þar sem það getur líka verið skaðlegt að innbyrða of mikið joð. Í Danmörku hefur joðbætt brauð hins vegar verið á markaði frá lokum síðustu aldar og það hefur reynst vel. „Svíar nota aðra aðferð, þeir eru með mjög mikið joð í saltinu sínu. En það getur verið tvíeggja sverð þar sem við erum líka að reyna að hvetja fólk til að borða ekki of mikið salt.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Greindi frá þingsályktunartillögunni í Þýskalandi Táningurinn byrjar á ráspól Fram vann spennandi fyrsta leik Glódís Perla náði stórum áfanga Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Komust yfir persónuupplýsingar forstjóra FBI Mun á endanum lenda á almenningi Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Samgöngutruflanir eru líklegar Það er spurning hvar maður lendir Hætta hringsóli á bílastæðum Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri? Líkamsárás í verslunarmiðstöð Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Nýjast á mbl.is » Greindi frá þingsályktunartillögunni í Þýskalandi Táningurinn byrjar á ráspól Fram vann spennandi fyrsta leik Glódís Perla náði stórum áfanga Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eru ennþá taplausir í Gettu betur Enginn gerir mig reiðari Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Engin blóðtengsl við fjölskyldu­sameiningu Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Samgöngutruflanir eru líklegar Það er spurning hvar maður lendir Hætta hringsóli á bílastæðum Er hættulegt að vera í rafmagnsbíl í eldingaveðri? Líkamsárás í verslunarmiðstöð Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf

Share this article