Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslendingar illa búnir undir neyðarástand

  • What: Survey on public preparedness for disasters in Iceland
  • Impact: 37% of Icelanders feel unprepared for emergencies
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 12.4.2026 | 12:40 Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Jarðfræðilegar hamfarir eru Íslendingum efst í huga þegar þeir eru spurðir hvaða hættur steðji að landinu. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Könnun sem Gallup gerði fyrir hugveituna Vörðu í haust sýnir að 94,6% Íslendinga treysta viðbragðsaðilum og stjórnvöldum til að bregðast rétt við hamförum og 81,4% telja að undirbúningur hjálpi þegar á reyni. Hins vegar telur aðeins 37,1% sig vel undirbúið fyrir hamfarir eða neyðarástand í heimabyggð sinni. Í skýrslu um könnunina segir að hún sé sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og henni sé ætlað að leggja grunn að reglubundnu eftirliti með viðbúnaði almennings. Hún leiði í ljós að traust til viðbragðsaðila og stjórnvalda til að bregðast rétt við hamförum eða neyðarástandi sé afar mikið og langflestir telji undirbúning hjálpa þegar á reyni. Þá sé einfaldur búnaður víða til staðar. En viðbúnaðurinn veikist hratt þar sem hann krefjist meiri fyrirhyggju. Nægjanlegar birgðir af mat og vatni séu samkvæmt svörum langt undir meðaltali þess sem kom fram í Eurobarometer-könnun um sama efni sem gerð var í löndum Evrópusambandsins árið 2024. Þá skorti að miklu leyti viðbúnað sem krefðist skipulags eða undirbúnings eins og samskiptaleiðir í neyð, þekkingu á viðbragðsáætlunum eða samráð við nágranna. Þannig kom fram í könnuninni að aðeins 20,7% sögðust eiga neyðarbirgðir af mat og drykk, samanborið við 32,6% að meðaltali í löndum ESB, 52% í Finnlandi og 44,8% í Svíþjóð. Vatnsbirgðir eru enn lakari: 9,1% á Íslandi á móti 22,5% í ESB og 35,7% í Finnlandi. Aðeins 12,3% telja sig geta séð sér fyrir vatni í meira en viku. Í skýrslu Vörðu segir að einfaldur búnaður á borð við vasaljós, kerti og sjúkrakassa sé tiltölulega útbreiddur en viðbúnaðurinn veikist hratt þegar hann krefjist meiri fyrirhyggju. Úthald íslenskra heimila virðist í mörgum tilvikum bundið við tvo til þrjá daga að hámarki. Lítið samráð við nærsamfélag Í skýrslunni segir að einn eftirtektarverðasti þáttur könnunarinnar sé hve lítið nærsamfélagið komi við sögu í viðbúnaði á Íslandi. Aðeins 5,2% hafi sammælst við fjölskyldu eða vini um samskiptaleiðir í neyð, 1% hafi ráðfært sig við nágranna og 0,4% nefnt vinnustað eða skóla sem upplýsingagátt. Til samanburðar séu sambærileg hlutföll mun hærri í löndum ESB og á hinum Norðurlöndunum. Varða segir að Ísland skeri sig úr að því leyti að upplýsingamiðlun í hamförum byggi nær alfarið á landsmiðlum. Alls nefndu 80,4% svarenda landsmiðla sem helstu upplýsingagátt, á móti 49% að meðaltali í ESB. Aðeins 8,1% nefndi stjórnvöld, sveitarfélög eða opinberar stofnanir, á móti 27% í ESB og 44–63% annars staðar á Norðurlöndunum. Í skýrslu Vörðu segir að þessir styrkleikar og veikleikar séu tvær hliðar á sama peningi. Landsmiðlar og viðbragðsaðilar nái hratt til stórra hópa, en með svo fáum boðleiðum geti truflanir á fjarskiptum eða starfsemi helstu miðla minnkað upplýsingaflæði til almennings verulega einmitt þegar mest á reyni. Í könnuninni voru þátttakendur spurðir hvaða hættur þeir teldu að steðjuðu að Íslandi og nefndi rúmlega helmingur jarðfræðilegar hamfarir og nærri 42% nefndu alvarlega röskun á mikilvægum innviðum, svo sem rafmagnsleysi, truflun á hitaveitu eða drykkjarvatni, fjarskiptum eða eldsneytisbirgðum. Í skýrslu Vörðu segir að pólitískar og öryggistengdar ógnir séu mun síður í forgrunni hér á landi en á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Það eigi bæði við um netöryggi, fjöldaflutninga fólks í neyð, pólitíska eða heimspólitíska ólgu og hryðjuverk. Fjórar tillögur Í skýrslunni eru lagðar fram fjórar megintillögur til úrbóta. Sú fyrsta er að festa reglubundnar mælingar í sessi svo að hægt sé að fylgjast með þróun og meta árangur. Í annan stað að sett verði skýrt sjö daga viðmið um lágmarksviðbúnað heimila, í samræmi við þá stefnu sem hin Norðurlandaríkin hafa þegar markað. Í þriðja lagi að nærsamfélagið verði virkjað með reglulegri fræðslu, samráði og æfingum á vinnustöðum, í skólum og milli nágranna og loks að byggð verði upp menning vitundar og viðbúnaðar þar sem undirbúningur er eðlilegur hluti af daglegu lífi en ekki aðeins viðbrögð við einstökum atburðum. Gallup-könnunin var lögð fyrir 30. október til 14. nóvember 2025 og náði til 2.070 einstaklinga úr Viðhorfahópi Gallup, 18 ára og eldri. Svör bárust frá 881 þátttakanda. Niðurstöður voru bornar saman við Special Eurobarometer 547 sem gerð var í febrúar og mars 2024 í öllum aðildarríkjum ESB. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Mikael fékk rautt fyrir slagsmál Pútín segist reiðubúinn að styðja við friðarumleitanir Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Á fjórða þúsund hafa verið drepin í stríðinu Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Áður grunuð og rannsökuð vegna umsáturseineltis Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Enginn óður til gjöreyðingar Mest lesið Í gær Í vikunni Væri ekki leyfilegt innan ESB Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Til þriggja Kanaríeyja í einni ferð Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Þessir flokkar bjóða fram í næsta mánuði Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Mikael fékk rautt fyrir slagsmál Pútín segist reiðubúinn að styðja við friðarumleitanir Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Á fjórða þúsund hafa verið drepin í stríðinu Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaður við endurreisn óljós Samkomulagi náð í Sundahöfn og verkfalli frestað Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Geimfarið lenti án vandræða Mest lesið Í gær Í vikunni Væri ekki leyfilegt innan ESB Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Til þriggja Kanaríeyja í einni ferð Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Þessir flokkar bjóða fram í næsta mánuði Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu

Share this article