Innlent | mbl | 5.3.2026 | 15:55 Íslendingar þurfi að liggja lágt Geir H. Haarde, fyrrverandi ráðherra, telur að Bandaríkin ein geti farið Ísland. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Geir H. Haarde, fyrrverandi ráðherra og fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, telur að Íslendingar geti treyst á að Bandaríkin standi við varnarsamninginn við Ísland og komi okkur til varnar, gerist þess þörf. Það sé þó háð því að Bandaríkin sjálf sjái hag af því. Staðan sé önnur nú en þegar Bandaríkjamenn lokuðu skyndilega varnarstöðinni hér á landi árið 2006. Hann telur Íslendinga ekki eiga neitt að sækja til Evrópusambandsins þegar kemur að varnarmálum. Það geti ekki boðið okkur upp á sérstakar varnir, enda sambandið almennt ekki í stakk búið til þess. Þetta kemur fram í viðtali við Geir sem birt var á Iðnþingi í dag. Eina landið sem getur varið Ísland Geir er algjörlega ósammála því að leita eigi til Evrópusambandsins við núverandi aðstæður. Það geti verið varhugavert að stofna til deilna og hatrammra átaka hér á landi út af aðild að Evrópusambandinu. Það muni skipta þjóðinni í fylkingar, sem sé ástæðulaust. „Ég tel að þó að Evrópusambandið sé gott og gilt og hafi gert margt gott fyrir sín aðildarríki, meðal annars komið á sáttum milli gamalla óvinaþjóða á meginlandinu, þá sé vel hægt að vera góður Evrópubúi án þess að vera í Evrópusambandinu. Og þetta byggir auðvitað allt á hagsmunamati hvers ríkis fyrir sig. Bretar til dæmis ákváðu að það væri ekki lengur þeirra hagsmunir að vera þarna innan dyra og ég held að það sé ekkert þangað að sækja þegar kemur að varnarmálum,“ segir Geir. Bandaríkin séu eina landið sem geti varið Ísland og því þurfi að passa upp á sambandið á milli ríkjanna. „Við þurfum líka að liggja lágt, ef svo mætti segja. Við skulum ekki vera að hafa okkur of mikið í frammi. Ég held til dæmis að það sé algjört óráð að fara að fitja upp á því að Ísland og Bandaríkin geri fríverslunarsamning. Það hefur margoft verið rætt og ég held að það væri hrein vitleysa að vera eitthvað að fitja upp á slíku núna.“ Frétt af mbl.is Beint: Iðnþing Samtaka Iðnaðarins í Hörpu Stjórnarhættir Trump ótraustvekjandi Íslendingar verði auðvitað að búa við þá tolla sem lagðir hafi verið á, líkt og önnur ríki, en verið sé að brjóta niður alþjóða viðskiptakerfið með slíkum einhliða ákvörðunum. Stjórnarhættir Donald Trump Bandaríkjaforseta séu ekki traustvekjandi og það sé áhyggjuefni. Hann noti vald sitt á duttlungakenndan hátt og vísar Geir þar meðal annars til þess hvernig forsetinn hefur lagt tolla á ríki og afturkallað þá eftir hentisemi. „Þetta er auðvitað afskaplega óþægilegt fyrir alla og skapar mikla óvissu á þessu sviði og það þekkja þeir sem eru í viðskiptum á Íslandi, viðskiptum við Bandaríkin.“ Verði að taka markviss skref Geir segir þá heimsmynd sem byggðist upp á grundvelli hugsjónamanna eftir síðari heimsstyrjöldina hafa riðlast og á því beri Trump og Vladimir Pútín Rússlandsforseti ábyrgð. Utanríkisstefna Bandaríkjamanna sé núna með þeim hætti að þeir geri það sem þeim sýnist, sama hvað öðrum finnst. Í því samhengi rifjar hann upp þá ákvörðun Bandaríkjaforseta að leggja niður Þróunarsamvinnustofnun Bandaríkjanna með einu pennastriki. Spurður hvað hann myndi ráðleggja íslenskum stjórnvöldum nú í hagsmunagæslu fyrir Ísland, þá sérstaklega í tengslum við Bandaríkin, segir Geir að draga verði djúpt andann. „Ég held að það verði að taka þetta rólega, taka markviss skref þegar okkar hagsmunir eru raunverulegir og passa upp á það að stíga ekki feilspor gagnvart núverandi valdahöfum í Bandaríkjunum.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Setja upp nýja teljara á vinsælustu stöðunum hérlendis Flytur frá Akureyri í sumar Matarvagni stolið á meðan eigendur voru á fæðingardeildinni Fjöruverðlaunin afhent í tuttugasta sinn Verðmætur túr hjá Sólbergi Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis NATO: Tyrkland var skotmarkið Tilboðið olli mér miklum vonbrigðum Logi tekur ekki endilega undir áhyggjur Bubba Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Forsendurnar riða til falls Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Neyðarskýlið sannaði gildi sitt Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýjast á mbl.is » Setja upp nýja teljara á vinsælustu stöðunum hérlendis Flytur frá Akureyri í sumar Matarvagni stolið á meðan eigendur voru á fæðingardeildinni Fjöruverðlaunin afhent í tuttugasta sinn Verðmætur túr hjá Sólbergi Umræðan Lífeyrir fylgi launum Kjósendur eiga skilið að fá skýr svör um borgarlínu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Felldu tillögu um að skoða aðild að ESB Máttu fara í húsleit hjá Lyf og heilsu NATO: Tyrkland var skotmarkið Loftnetin nú endanlega á útleið Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland: „Búin að fá hálfgert ógeð“ Djúp lægð nálgast og gular viðvaranir Gefa baráttuna upp á bátinn og endurgreiða styrki Andlát: Haukur Guðmundsson Breyta lesviðmiðum eftir að markmiðið náðist aldrei Diljá gagnrýnir RÚV: Íranar mótmæla við Efstaleiti Forsendurnar riða til falls Meiri háttar líkamsárás til rannsóknar Íslendingur vann tæpar tvær milljónir Neyðarskýlið sannaði gildi sitt Koma bara ef þeir fá læknishjálp Læknar hvetja ríkisstjórnina til að hætta við Kröpp lægð aðfaranótt föstudags Inga birtir niðurstöður þrátt fyrir gagnrýni Fengu ekki leyfi til að fjármagna Ljósið Fjölgar í hópi sakborninga: Tíu komnir á lista Evrópa komin í ógöngur með regluverk Innkalla leikföng vegna gruns um asbest Erlendu pari bjargað við Hreysiskvísl Efnahagsaðgerðir máske eftir páska Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Smjörva skipt út á Landspítalanum Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“