Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Íslenskir neytendur ekki svartsýnni síðan 2020

Read Full Article →

Íslenskir neytendur hafa litla tiltrú á núverandi stöðu í efnahags- og atvinnumálum en eru jafnframt svartsýnir á að aðstæður batni á næstunni. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Gallup en þar segir að væntingavísitala hafi lækkað um sjö stig milli mælinga. Væntingavísitala Gallup mælist nú einungis 56,3 stig en leita þarf aftur til októbermánaðar 2020 til að finna lægra gildi vísitölunnar. Sé árið 2020, sem litaðist af áhrifum Covid-faraldursins, tekið út fyrir sviga þá var vísitalan síðast lægri árið 2011. Það að Væntingavísitala Gallup sé á tilteknum tíma 100 merkir því að það eru jafn margir jákvæðir og neikvæðir svarendur. Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef hún er lægri eru fleiri neikvæðir. Hin umrædda könnun fer fram fyrsta miðvikudag hvers mánaðar og í úrtaki eru Íslendingar 18 ára og eldri af öllu landinu spurðir hvernig þeir meta efnahagsaðstæður. Gögn eru vegin eftir kyni, aldri og búsetu til samsvörunar við hlutfall þjóðarinnar í viðkomandi hópum. Vísitalan er byggð á fimm þáttum: mati á núverandi efnahagsaðstæðum, væntingum til efnahagslífsins eftir sex mánuði, mati á núverandi ástandi í atvinnumálum, væntingum til ástands í atvinnumálum og væntingum til heildartekna heimila eftir sex mánuði.

Share this article