Væntingavísitala Gallup mælir meðal annars mat á núverandi efnahagsaðstæðum og væntingum til efnahagslífsins eftir 6 mánuð, sem og mat á núverandi ástandi í atvinnumálum og væntingum eftir 6 mánuði. Gildi vísitölunnar fyrir mat og væntingar til atvinnuástands í mars var 65,6 en 28,5 fyrir efnahagslífið. Gildið fyrir mat og væntingar til ástands í atvinnumálum var síðast lægra haustið 2020 en gildi fyrir mat og væntingar til efnahagslífsins hefur ekki verið lægra frá haustinu 2010. Í dag eru heimilin álíka svartsýn á stöðuna í dag og stöðuna eftir sex mánuði, ólíkt því sem sást í fyrri dýfum. Jón Bjarki Benediktsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, bendir á að svo mikil og útbreidd svartsýni virðist ekki birtast í hagtölum. Þrálát verðbólga og háir vextir séu þó vissulega stórt vandamál. „En við virðumst hreinlega ekki vera farin að finna fyrir áhrifum þessa í þeim mæli sem ætla mætti af umræðunni. Það þarf kannski að setja þessa stöðu í hárri verðbólgu og stýrivöxtum í samhengi við það hversu mikla burði heimilin hafa þrátt fyrir allt, og fyrirtæki reyndar líka, til þess og sýnt ákveðna aðlögunarhæfni að þessum aðstæðum,“ segir hann enn fremur. Verðbólga á ársgrundvelli mældist 5,4% í mars, og jókst um 0,2 prósentustig milli mánaða. Hefur hún ekki mælst meiri frá því í september 2024. Verðbólgan fór lægst niður í 3,7% í nóvember 2025 en jókst síðan um 0,8% milli mánaða. Seðlabankinn birti verðbólguspá í ritinu Peningamálum í byrjun febrúar. Þar var gert ráð fyrir að ársverðbólga yrði 5% á fyrsta ársfjórðungi en tæki að hjaðna á ný og yrði 4,2% á öðrum fjórðungi ársins. Spáð er að verðbólga verði komin niður í 3,8% á síðasta fjórðungi ársins og verði 4,3% á árinu öllu. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi mældist 7,1% í febrúar, þar sem 17.000 voru atvinnulausir, og jókst um 0,4% milli mánaða. Leitni atvinnuleysis samkvæmt niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar mældist 6,0% og hefur ekki verið hærri síðan í apríl 2021. Í spá Seðlabankans er gert ráð fyrir að atvinnuleysi verði um 4,8% í ár en minnki í 4,3% á næsta ári. Stýrivextir standa nú í 7,5% eftir að peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að hækka vexti um 25 punkta á síðasta fundi sínum um miðjan mars. Tveir af fimm nefndarmeðlimum lögðu til að stýrivextir yrðu hækkaðir um 50 punkta. Nefndin gaf til kynna að vextir gætu hækkað frekar en næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 20. maí næstkomandi. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .