Í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið og greint var frá í síðustu viku kom fram að andstaða landsmanna gagnvart aðild Íslands hefði aukist töluvert á síðustu 12 mánuðum. Í könnuninni var einnig spurt út í stjórn Íslands yfir auðlindum sínum komi til þess að kosið yrði um inngöngu í Evrópusambandið. Í fyrsta lagi var spurt: Hversu miklu eða litlu máli telur þú skipta að ef samningur um inngöngu Íslands í Evrópusambandið (ESB) verður lagður fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslu að í honum felist að Ísland haldi yfirráðum yfir auðlindum sínum? Alls sögðu 88% það skipta miklu máli að Ísland haldi yfirráðum yfir auðlindum sínum, þar af sögðu 70,4% það skipta miklu máli, 4,8% sögðu það skipta litlu máli, þar af 3,2% sem sögðu það skipta mjög litlu máli, og 7,2% svöruðu hvorki né. Ef eingöngu er horft til þeirra sem tóku afstöðu voru 94,8% sem sögðu það skipta miklu máli og einungis 5,2% sögðu það skipta litlu máli. Marktækur munur var á afstöðu karla og kvenna, þar sem 91% kvenna sögðu það skipta máli samanborið við 86% karla. Af þeim sem eru andvígir inngöngu í Evrópusambandið sögðu 93% það skipta miklu máli en 6% sögðu það skipta litlu máli og 2% svöruðu hvorki né. Af þeim sem eru hlynntir inngöngu sögðu 80% það skipta miklu máli, 5% sögðu það skipta litlu máli og 14% svöruðu hvorki né. Nánar er fjallað um könnun Gallup í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .