Samkvæmt könnun Viðskiptablaðsins sem Gallup gerði eru 54% þeirra sem tóku afstöðu andvíg því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Þessi andstaða fer vaxandi milli sambærilegra kannana. Augljóslega mun þessi meirihluti segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem halda á í ágúst. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir efnislega þennan meirihluta vera vitleysinga í Morgunblaðinu í vikunni sem leið: „Það er ekki hlutlaus ákvörðun að segja nei. Hún felur í sér að hafna frekari upplýsingum um eitt stærsta hagsmunamál þjóðarinnar.“ Sá mikli fjöldi sem mun segja nei við spurningunni um hvort Ísland eigi að halda áfram aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið gerir það ekki vegna fáfræði. Hann gerir það einmitt vegna þess að hann veit um hvað málið snýst – það snýst um aðlögun að meginreglum Evrópusamrunans. Hann gerir sér fyllilega grein fyrir því að hér er ekki um einhvers konar könnunarviðræður að ræða heldur matsferli á því hvort íslenska ríkið geti lagað sig að reglum ESB með það að markmiði að gerast aðildarríki. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift