Innlent | mbl | 28.3.2026 | 20:57 Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Starfsfólk leitaði sjaldan staðfestingar á að tilskilin leyfi væru til staðar. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar „Ég er harmi slegin“ „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ » Fleiri tengdar fréttir Það heyrir til undantekninga að staðfesting á leyfi fósturforeldra liggi fyrir hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar þegar barni er ráðstafað í fóstur. Samkvæmt barnaverndarlögum er engu að síður óheimilt að ráðstafa barni í fóstur nema til þeirra sem hafa til þess tilskilin leyfi. Þetta kemur fram í niðurstöðum nýrrar skýrslu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála (GEV) sem sýna að töluverður og alvarlegur misbrestur hafi orðið hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar við vinnslu mála þar sem börn voru vistuð utan heimilis á grundvelli barnaverndarlaga. Frétt af mbl.is Töluverður og alvarlegur misbrestur átti sér stað Töldu leyfi til staðar ef BOFS benti á Var það staðfest í samtölum við starfsfólk að skortur hefði verið á því að barnaverndarþjónustan hefði aflað staðfestingar á leyfum fósturforeldra. Sagði starfsfólk að almennt væri litið svo á að ef Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) benti á tiltekna fósturforeldra þá væri gert ráð fyrir því að viðkomandi aðilar hefðu leyfi. Benda eftirlitsaðilar hins vegar á að það sé á ábyrgð barnaverndarþjónustunnar að gera ekki samning við aðila nema viðkomandi hafi leyfi. Þá sé einkar mikilvægt að haldið sé utan um leyfisbréf fósturforeldra í skjalavistunarkerfi barnaverndarþjónustunnar eins og málum er háttað eftir árið 2022 enda séu leyfin nú tímabundin. Bendir GEV á að barnaverndarþjónustan þurfi að huga að því hvernig fóstursamningar eru útbúnir í þessu sambandi. Frétt af mbl.is Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Samningar ekki endurnýjaðir tímanlega Í þeim málum sem skoðuð voru kom líka ítrekað fyrir að fóstursamningar hefðu ekki verið endurnýjaðir tímanlega. Þannig mynduðust tímabil á milli gildra fóstursamninga, jafnvel í nokkra mánuði. Þá var algengt að í gögnunum væri að finna tilkynningar um gerð fóstursamnings til BOFS, áður Barnaverndarstofu, en engan samsvarandi samning að finna í málunum. Ekki sé ljóst hver skýringin sé á því. Þá vakti það athygli GEV að í tveimur málanna var gerður samningur um varanlegt fóstur áður en fullnaðardómur féll um sviptingu forsjár. Í umræddum málum kvað héraðsdómur upp úrskurð sinn um sviptingu forsjár en Landsréttur ekki fyrr en í október sama ár. Samningur um varanlegt fóstur var gerður í maí. Hefði að mati GEV verið rétt að bíða með það þar til Landsréttur hafði kveðið upp sinn úrskurð. Í skýrslunni beinir GEV þeim tilmælum til barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar að tryggja að í gögnum máls liggi fyrir staðfesting á leyfi fósturforeldra. Þá er einnig mælst til þess að barnaverndarþjónustan gæti að gildistíma leyfa fósturforeldra svo barni sé ekki ráðstafað í fóstur hjá aðilum sem hafa ekki til þess gilt leyfi. Endurskoða þurfi verkferla er kemur að gerð fóstursamninga í þessu tilliti. Tengdar fréttir Neyðarástand í málefnum barna Ráðgjafar í algjöru þroti og eftirliti ekki sinnt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Undirbúningur á lokametrunum átta árum síðar „Ég er harmi slegin“ „Þetta hefði alls ekki þurft að fara svona“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Tryggvi drjúgur Orri óstöðvandi í toppslagnum Mikil ásókn í stríðsbækur Guðmundur Ingi hallar sér að Flokki fólksins Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Telja ferðamenn örugga við jökulinn „Það er að byrja að snjóa og bæta í vind“ Enginn gerir mig reiðari Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Engin blóðtengsl við fjölskyldusameiningu Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Hætta hringsóli á bílastæðum Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Icelandair aflýsir Bandaríkjaflugi „Það er að byrja að snjóa og bæta í vind“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Nýjast á mbl.is » Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Tryggvi drjúgur Orri óstöðvandi í toppslagnum Mikil ásókn í stríðsbækur Guðmundur Ingi hallar sér að Flokki fólksins Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Betri staða mjólkinni að þakka Eru ennþá taplausir í Gettu betur Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása „Það er að byrja að snjóa og bæta í vind“ Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Engin blóðtengsl við fjölskyldusameiningu Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Hætta hringsóli á bílastæðum Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Icelandair aflýsir Bandaríkjaflugi „Það er að byrja að snjóa og bæta í vind“ Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf