Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hanna Katrín setur 30 milljónir í baráttuna við verðbólgu

  • What: Political and economic commentary
  • Impact: No direct security impact
Read Full Article →

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur veitt Páli Gunnari Pálssyni og hans fólki í Samkeppniseftirlitinu þrjátíu milljóna viðbótarfjárveitingu til að vinna að áherslum stjórnar um virka samkeppni á dagvörumörkuðum. Í ljósi þess að fjárveitingin og framlagning fjármálaáætlunar virðast ætla að vera einu aðgerðir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur gegn verðbólgunni kemur það ekki hröfnunum á óvart að væntingar á skuldabréfamarkaði benda til þess að vextir muni nánast ekkert lækka út áratuginn. Hrafnarnir telja jafnframt að þessu fé hefði verið betur varið í að hafa eftirlit með gjaldahækkunum hins opinbera, en þegar litið er til undirliða vísitölu neysluverðs hefur vísitala opinberrar þjónustu hækkað langmest undanfarið ár, eða um tæplega 30%. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskptablaðsins. Þessi grein birtist fyrst í blaðinu sem kom út 25. mars 2026.

Share this article