Innlent | mbl | 29.3.2026 | 14:46 Ársæll hættur störfum: Ráðherra talar ekki við mig Ársæll Guðmundsson. mbl.is/Karítas Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólameistara Borgarholtsskóla vikið Þriðja skólameistaraembættið auglýst Vill Kristrúnu fyrir dóm Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Spyr hve mörg embætti hafi verið auglýst » Fleiri tengdar fréttir Ársæll Guðmundsson hefur látið af störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla. Hann átti að snúa aftur úr veikindaleyfi eftir 1. apríl og starfa út júní næstkomandi. „Það er löngu orðið ljóst að ráðherra eða ráðuneytisstjóri vilja ekkert fá mig aftur til starfa. Þetta er kannski ekkert óeðlilegt enda er erfitt að starfa sem embættismaður sem heyrir beint undir ráðherra ef ráðherra vill ekki hafa samband við þig, tala við þig eða nýta starfskrafta þína,” segir Ársæll aðspurður. Frétt af mbl.is Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi menntamálaráðherra, ákvað á sínum tíma að auglýsa stöðu skólameistara Borgarholtsskóla í stað þess að endurskipa Ársæl sjálfkrafa, eins og venja er til nema eitthvað beri út af. Fréttir voru sagðar af því í janúar 2025 að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og þá nýbakaður ráðherra, hefði hringt í Ársæl vegna þess að barnabarn hennar hefði glatað skóm í skólanum. Hún ætti mikið undir sér og ýjaði að tengslum við lögregluna. Ársæll tjáði sig opinberlega um símtalið í desember síðastliðnum. Frétt af mbl.is Ársæll um símtalið: „Hún var ekki í neinu jafnvægi“ „Dylst engum hvað er í gangi“ „Þetta er mjög leiðinlegt að verða fyrir þessu eftir alla þessa áratugi í þjónustu ríkisins flekklaust. Eins og ráðuneytið sagði sjálft í desember var ekkert út á mín störf að setja,” bætir Ársæll við um brotthvarf sitt og bendir á að Borgarholtsskóli hafi ávallt verið rekinn í plús, sem sé sjaldgæft hér á landi, og að stjórnendamat fyrir nokkrum árum hefði komið mjög sterkt út. „Það dylst engum hvað er í gangi, það er bara svoleiðis.” Tala ekki við mig Ársæll hefur verið skólameistari við Borgarholtsskóla í áratug. Alls hefur hann verið skólameistari í fjórum framhaldsskólum, auk þess sem hann starfaði í menntamálaráðuneytinu í tvö ár að hvítbók. „Ég hef unnið fyrir marga menntamálaráðherra sem allir hafa komið mjög vel fram og kallað eftir mínum starfskröftum og þekkingu en það er ekki hjá ráðherrum Fólks flokksins, þeir tala bara ekki við mig.” Frétt af mbl.is Segir frásögn Ársæls í engu samræmi við sína upplifun Spurður hvað tekur við næst segir hann það eiga eftir að koma í ljós. Býst hann við því að geta gagnast einhvers staðar með sína þekkingu og reynslu. Mikilvægt fyrir íslenskt lýðræði Ársæll kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur í vitnamáli sínu. Hann hafði farið fram á að fá að leiða fram vitni fyrir rétti til þess að geta lagt mat á hvort efni væru til málshöfðunar gegn ríkinu með Ingu Sæland í fyrirsvari fyrir það. Frétt af mbl.is Skólameistari kærir úrskurð Ársæll segir mjög mikilvægt fyrir framgöngu íslensks lýðræðis að fá það fram að ráðherra geti ekki hringt í embættismenn og skipað þeim að ganga sinna persónulegra erinda. Ef upp kemst sé embættismaðurinn látinn fara en ráðherrann fari í stærra embætti. Slík vinnubrögð þekkist ekki í lýðræðisríki eða í hinum vestræna heimi. „Þetta snýst ekki bara um Ársæl Guðmundsson, þetta snýst um alla embættismenn ríkisins og stjórnsýsluna í heild sinni, hvar liggja mörkin, hvar er valdið og hvernig er því beitt,” greinir hann frá og segir málið vera einsdæmi. Tengdar fréttir Skólameistara Borgarholtsskóla vikið Þriðja skólameistaraembættið auglýst Vill Kristrúnu fyrir dóm Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Einum af sex skólameisturum tilkynnt um stöðuna Spyr hve mörg embætti hafi verið auglýst » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bikarmeistarar SKI í alpagreinum krýndir á glæsilegu lokahófi á Akureyri Ársæll hættur störfum: Ráðherra talar ekki við mig Holtavörðuheiði, Hellisheiði and Þrengsli now open Frá Eyjum til Skotlands Flight to Paris cancelled Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það er að byrja að snjóa og bæta í vind“ Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Það er spurning hvar maður lendir Snjóflóðið féll á hóp vélsleðamanna Mest lesið Í gær Í vikunni Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Flugi til Parísar aflýst Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Holtavörðuheiðin er lokuð Bílar fastir í Norðdal Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Vegir frá borginni lokaðir eða á óvissustigi Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Engin blóðtengsl við fjölskyldusameiningu Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Icelandair aflýsir Bandaríkjaflugi Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Hætta hringsóli á bílastæðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Nýjast á mbl.is » Bikarmeistarar SKI í alpagreinum krýndir á glæsilegu lokahófi á Akureyri Ársæll hættur störfum: Ráðherra talar ekki við mig Holtavörðuheiði, Hellisheiði and Þrengsli now open Frá Eyjum til Skotlands Flight to Paris cancelled Umræðan Skaði og Njörður Orkuöryggi heimsins í uppnámi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn gerir mig reiðari Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Þúsundir mótmæltu í Lundúnum Ársæll hættur störfum: Ráðherra talar ekki við mig Mest lesið Í gær Í vikunni Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Flugi til Parísar aflýst Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Vegum breytt fyrir vindmyllurnar Staðfesting á leyfi fósturforeldra ekki til staðar Holtavörðuheiðin er lokuð Bílar fastir í Norðdal Ísland yrði eitt ríkasta landið í ESB Erfið akstursskilyrði eftir klukkan 16 Vegir frá borginni lokaðir eða á óvissustigi Lögbann á veiðimenn sem brutu 30 lása Engin blóðtengsl við fjölskyldusameiningu Fannst heill á húfi eftir snjóflóð á Ólafsfirði Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Icelandair aflýsir Bandaríkjaflugi Gæslan aðstoðaði lögregluna á Egilsstöðum Hætta hringsóli á bílastæðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við blindbyl Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar