Íranski byltingarvörðurinn hefur hótað árásum á bandaríska háskóla í Mið-Austurlöndum, eftir árás Bandaríkjanna og Ísraels á tvo háskóla í Teheran í gær. Ekki hefur verið tilkynnt um mannfall en byggingar skemmdust í árásinni. Í tilkynningu frá byltingarverðinum sem birt var í írönskum ríkisfjölmiðli í dag kom fram að ef Bandaríkjastjórn vildi forðast árásir á bandaríska háskóla í þessum heimshluta þá yrði hún að fordæma árásirnar á háskólana tvo fyrir hádegi á mánudaginn. Í tilkynningunni var öllu starfsfólki skólanna, kennurum, og nemendum bandarísku háskólanna, sem og íbúum í nágrenni háskólanna, ráðlagt að vera ekki í kílómetrers fjarlægð frá háskólasvæðunum. Fjöldi bandarískra háskóla er í Mið-Austurlöndum, svo sem Texas A&M University í Katar og New York University í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
The Iranian Revolutionary Guard Corps has issued a direct threat of physical attacks against U.S. university campuses in the Middle East, citing retaliatory motives following U.S.-Israeli strikes in Tehran. The threat, communicated via Iranian state media, explicitly warns U.S. university staff, faculty, students, and nearby residents to avoid the campuses, indicating a potential kinetic attack vector. No specific vulnerability, CVSS score, software versions, patches, or technical workarounds are provided in the source material, as the threat pertains to physical security.