Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Norska lögreglan rannsakar fleiri brot tengd 764-hópnum

Norwegian authorities are investigating a surge in crimes linked to the online extremist network "The Community," specifically a subgroup designated "764," which operates by recording and distributing violent acts and illegal content through closed chat channels. The threat involves the online radicalization and coercion of individuals, primarily youth, into committing real-world violence and self-harm, as evidenced by cases of child sexual abuse material possession and attempted murder. Cross-border investigations are complex and time-consuming due to the online nature of the crimes and the significant increase in related police reports.
Read Full Article →

Lögreglan í Noregi rannsakar fjölda mála sem talin eru tengjast hættulegum ofbeldishópi á netinu. Tilkynningum um brot sem varða ofbeldishópa hefur fjölgað gífurlega á undanförnum árum. Hópurinn nefnist 764 en hann er hluti af stærra neti sem kallað hefur verið The Community, eða Samfélagið. Þar eru brot tekin upp og þeim dreift á lokuðum spjallrásum. Yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu, þar með talið á Íslandi, hafa varað við hópum á borð við þennan sem ýta undir ofbeldisdýrkun og sjálfsskaða. Norski fjölmiðillinn Dagbladet segir meðal annars frá því að í einu tilfelli hafi ungur drengur verið ákærður fyrir vörslu barnakláms og alvarleg kynferðisbrot gegn börnum undir sextán ára aldri í gegnum netið. Honum var einnig gert að sök að hafa hvatt annan einstakling til að valda sjálfum sér líkamlegum skaða. Við rannsókn lögreglu á samskiptum drengsins á netinu kom tenging hans við hópinn í ljós. „Mér leið eins og rándýri“ Í umfjöllun Dagbladet er einnig vísað til ungs sænsk drengs sem lýsti fyrir lögreglu hvernig hópurinn hvatti hann ítrekað til að fremja ofbeldisverk. Drengurinn, sem gengur undir dulnefninu Slain, kvaðst hafa hækkað í tign innan hópsins eftir því sem brot hans gagnvart öðrum ágerðust. Hann var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps eftir að hafa stungið mann á níræðisaldri í bakið í bænum Hässelby í úthverfi Stokkhólms. „Þeir sögðu gerðu það, gerðu það, gerðu það, gerðu það, þannig að ég sagði jæja þá. Mér var stjórnað af einhverjum öðrum. Loksins þrýstu þeir á mig að gera það og þegar ég lét eftir leið mér… eins og dýri, rándýri,“ er haft eftir Slain í frétt norska fjölmiðilsins. Samkvæmt norsku lögreglunni hefur tilkynningum sem varða ofbeldishópa á netinu fjölgað verulega á undanförnum árum; úr 4 árið 2024 í 51 árið 2025. Rannsóknir af þessu tagi eru bæði flóknar og tímafrekar, þær teygi sig yfir landamæri þar sem sem brotin eiga sér stað á netinu.

Share this article