Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þriggja bíla árekstur vegna hálku á Holtavörðuheiði

Read Full Article →

Áreksturinn varð á Holtavörðuheiði vegna hálku.RÚV / Kristófer Óli Birkisson Þriggja bíla árekstur varð á Holtavörðuheiði í kvöld. Meiðsl á fólki voru minni háttar samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi vestra en ekki liggur fyrir hversu margir þurftu að leita sér aðhlynningar. Áreksturinn varð með þeim hætti að einn bíll hafði farið út af veginum vegna hálku, annar var að draga hann aftur upp á veginn og þá kom bíll sem lenti í árekstri við þessa tvo bíla. Búið er að flytja fólk og bíla burtu af vettvangi. Fljúgandi hálka og mjög slæm akstursskilyrði eru á Holtavörðuheiði samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Vegagerðarinnar; umferdin.is

Share this article