Holtavörðuheiði hefur verið lokað að nýju vegna þriggja bíla áreksturs. Lögreglan á Vesturlandi hefur óskað eftir aðstoð björgunarsveita. Ásmundur Kristinn Ásmundsson yfirlögregluþjónn segir einhverja hafa hlotið lítilsháttar meiðsli. Heiðin verður lokuð, í það minnsta á meðan unnið er á vettvangi. Ófært er um heiðina og þar er skyggni lélegt. Veðurstofan og Vegagerðin vara áfram við hríðarveðri um norðan- og norðvestanvert landið fram eftir degi með tilheyrandi líkum á samgöngutruflunum. Upplýsingar um færð má sjá á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is . Fréttin verður uppfærð.