Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Búið að opna Fjarðarheiði og Þröskulda

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 31 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búið að opna Fjarð­ar­heiði og Þrösk­ulda Brynjólfur Þór Guðmundsson Búið er að opna veginn um Fjarðarheiði sem var ófær í morgun og sömuleiðis Þröskulda. Dynjandisheiði er enn lokuð en unnið er að mokstri. Vegagerðin boðar næst upplýsingar um stöðu þess vegnar klukkan tólf. Siglufjarðarvegur er opinn en þæfingur er á veginum og hann er einbreiður á köflum. Vegirnir um Víkurskarð og Dalsmynni eru enn lokaðir. Vegurinn um Þröskulda var mokaður í morgun. Mynd úr safni. RÚV / Halla Ólafsdóttir Fyrir 30 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Náttúra Ætlaði ekki að láta spyrj­ast um mig að ég tæki vit­laus­an hest Helga Björg Ingimarsdóttir býr við ysta haf á bænum Höfnum á Skaga. Fyrir 39 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sam­fylk­ing­in og Sjálf­stæð­is­flokk­ur berj­ast um for­yst­una Samfylkingin mælist stærst í Hafnarfirði í nýrri skoðanakönnun. Litlu munar á fylgi hennar og Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Varð að fá svör við því hvers vegna fólk lætur kross­festa sig ár eftir ár „Maður á svo rosalega erfitt með að setja sig í þessar aðstæður,“ segir Sigyn Blöndal. Þegar hún bjó á Filippseyjum kynntist hún manni sem hefur látið krossfesta sig 36 sinnum. Hún gerði þátt um athæfið sem verður á dagskrá Rásar 1 um páskana. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Stjórn­völd lækka elds­neyt­is­skatta tíma­bund­ið Ástralska ríkisstjórnin vonast til að lækkun eldsneytisskattanna létti á útgjöldum heimilanna. Víða hefur verið gripið til sértækra aðgerða til að spara eldsneyti. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Skák Getur orðið sá fyrsti í sögu móts­ins til að vinna allar sínar skákir Íraninn Amin Tabatabaei er enn með fullt hús vinninga á Reykjavíkurskákmótinu og getur orðið fyrstur í sögu mótsins til að vinna allar sínar skákir. Guðmundur Kjartansson er orðinn efstur Íslendinga og á möguleika á verðlaunasæti. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Nokkr­ir vegir lok­að­ir að morgni Brynjólfur Þór Guðmundsson Víða er hálka, þæfingur eða snjóþekja á vegum og vetrarlegt um að lítast. Fjarðarheiði er lokuð en unnið er að mokstri. Einnig er ófært um Öxi og Breiðdalsheiði. Á Vestfjörðum eru vegirnir um Dynjandisheiði og Þröskulda ófærir og unnið að mokstri á síðarnefnda veginum. Siglufjarðarvegur og vegirnir um Víkurskarð og Dalsmynni eru lokaðir. Fjarðarheiði að vetri. Safnmynd. RÚV / Rúnar Snær Reynisson Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mið­flokk­ur­inn búinn að stilla upp í Kópa­vogi Einar Jóhannes Guðnason og Nína Berglind Sigurgeirsdóttir skipa tvö efstu sætin á framboðslista Miðflokksins í Kópavogi. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Suð­vest­an­átt með dá­litl­um skúrum eða éljum Suðvestanátt leikur um landið í dag með hita um eða yfir frostmarki. Þurrt og bjart verður austanlands en annars staðar er útlit fyrir dálitlar skúrir eða él. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Skák Byrj­aði að tefla í út­göngu­banni og er nú 11 ára stjarna á Reykja­vík­ur­skák­mót­inu Reykjavíkurskákmótið stendur sem hæst í Hörpu og þar teflir margt af besta skákfólki heims þessa dagana. Meðal þess er hin 11 ára gamla Bodhana Sivanandan frá Bretlandi sem þarf að notast við upphækkun á sæti sínu til að sjá taflborðið betur. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Frið­ar­gæslu­lið­ar urðu fyrir árás í Líban­on Brynja Dögg Friðriksdóttir Friðargæsluliðarnir eru í Friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, The United Nations Interim Force in Lebanon (UNIFIL). Myndin tengist fréttinni óbeint. EPA / WAEL HAMZEH Utanríkisráðuneyti Indónesíu hefur staðfest að indónesískur friðargæsluliði hafi verið drepinn í Líbanon og þrír aðrir séu særðir. Friðargæsluliðarnir eru í Friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon, The United Nations Interim Force in Lebanon (UNIFIL). Friðargæsluliðarnir urðu fyrir sprengingu nærri bænum Adchit Al Qusayr nærri landamærum Ísraels og Líbanons í gær. Ísraelski herinn hefur barist við Hezbolla-hreyfinguna á þessu svæði í tæpan mánuð. Stjórnvöld í Indónesíu fordæma harðlega árásina og kalla eftir því að hún verði rannsökuð en ekki liggur fyrir hver ber ábyrgð á árásinni. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Air China hefur flug að nýju til Norður-Kóreu Brynja Dögg Friðriksdóttir Flugvél Air China á flugvellinum í Peking. EPA / WU HAO Kínverska flugfélagið Air China hefur flug að nýju í dag frá Peking í Kína til Pyongyang í Norður-Kóreu en flugfélagið hefur ekki flogið þessa leið í sex ár. Samgöngur hafa verið mjög takmarkaðar milli landanna síðan 2020 þegar Covid-19 faraldurinn kom upp. Lestarsamgöngur hófust að nýju fyrr í þessum mánuði. Kína opnaði landamæri sín fyrir nokkru síðan en yfirvöld í Norður-Kóreu hafa farið hægar í sakirnar við að opna landamæri sín að nýju. Enn sem komið er veita yfirvöld í Norður-Kóreu aðeins vegabréfsáritanir til ferðamanna sem eru á leið til landsins í opinberum eða sérstökum erindagjörðum. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ástralía Lög­regla skaut mann sem hafði verið eft­ir­lýst­ur í sjö mánuði Eftirlýstur maður var skotinn til bana af lögreglu í Viktoríu-fylki í Ástralíu í gær. Mannsins hefur verið leitað í sjö mánuði en hann var eftirlýstur fyrir morð á tveimur lögreglumönnum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Banda­ríkja­for­seti er ekki á móti því að rúss­neskt ol­íu­skip sé á leið til Kúbu Donald Trump Bandaríkjaforseti segir það ekki skipta hann nokkru máli að rússneskt olíuskip sé á leið til Kúbu. Rússneskt olíuskip með um 730.000 tunnur af olíu er á leið til Kúbu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Rúss­neskt ol­íu­skip á leið til Kúbu Olíuflutningaskipið ætti að öllu óbreyttu að koma til hafnar á mánudagskvöld að staðartíma. Um 730.000 þúsund tunnur af olíu eru um borð í skipinu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ítalía Stór­felld­ur lista­verka­þjófn­að­ur frá Magn­ani Rocca-safn­inu Listaverkum eftir Renoir, Cezanne og Matisse var stolið af Magnani Rocca-safninu nærri borginni Parma í síðustu viku. Verkin eru metin á tæpan 1,3 milljarða íslenskra króna. 29. mars 2026 kl. 22:59INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Þriggja bíla árekst­ur vegna hálku á Holta­vörðu­heiði Brynja Dögg Friðriksdóttir Áreksturinn varð á Holtavörðuheiði vegna hálku. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Þriggja bíla árekstur varð á Holtavörðuheiði í kvöld. Meiðsl á fólki voru minni háttar samkvæmt lögreglunni á Norðurlandi vestra en ekki liggur fyrir hversu margir þurftu að leita sér aðhlynningar. Áreksturinn varð með þeim hætti að einn bíll hafði farið út af veginum vegna hálku, annar var að draga hann aftur upp á veginn og þá kom bíll sem lenti í árekstri við þessa tvo bíla. Búið er að flytja fólk og bíla burtu af vettvangi. Fljúgandi hálka og mjög slæm akstursskilyrði eru á Holtavörðuheiði samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Vegagerðarinnar; umferdin.is 29. mars 2026 kl. 22:25INNLENDAR FRÉTTIR Matur Kokkur ársins ætlar lands­lið­inu stóra hluti á heims­meist­ara­mót­inu Metnaður, fagmennska og að smakka matinn vel er það sem tryggði Ísaki Aroni titilinn kokkur ársins. 29. mars 2026 kl. 21:28MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ný­stofn­uð hljóm­sveit sigr­aði Músíkt­il­raun­ir Sigursveit Músíktilrauna, Falinn gjóður, var stofnuð nokkrum vikum fyrir keppnina. Hljómsveitarmeðlimir voru steinhissa yfir úrslitunum. 29. mars 2026 kl. 21:11INNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ódýr­ustu páska­egg­in í Prís sam­kvæmt verð­lags­út­tekt ASÍ Páskaegg af öllum stærðum og gerðum fylla nú hillur verslana. Ódýrustu páskaeggin eru í Prís samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlits ASÍ. Verð á páskaeggjum sem merkt eru Bónus hækka mest milli ára. 29. mars 2026 kl. 20:50ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Full­trú­ar fjög­urra ríkja ræddu frið­ar­um­leit­an­ir í Islamab­ad Stjórnvöld í Íran hóta Bandaríkjamönnum öllu illu ætli þeir að hefja landhernað. Ríkin tvö áttu ekki fulltrúa á fundum í Islamabad í dag þar sem leiðir til að minnka spennu í stríðinu í Mið-Austurlöndum voru ræddar. 29. mars 2026 kl. 20:30ÍÞRÓTTIR Handbolti Vals­menn í und­an­úr­slit­in gegn KA Hans Steinar Bjarnason Valur komst í kvöld í undanúrslit úrvalsdeildar karla í handbolta með sigri á HK í Kórnum, 32-28. Valur var einu marki yfir í hálfleik, 13-14 og jafnræði var með liðunum framan af í seinni hálfleik. Eftir að tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik leiddu Valsmenn með tveggja til þriggja marka mun þar til undir lokin. Gunnar Róbertsson skoraði 10 mörk fyrir Val í kvöld. Rúv / Mummi Lú Valur vann fyrsta leikinn í einvígi liðanna í 8-liða úrslitunum eftir framlengingu og unnu Valsmenn einvígið því 2-0. Valur mætir KA í undanúrslitunum en KA sló út ÍBV fyrr í kvöld í háspennuleik. 29. mars 2026 kl. 20:06INNLENDAR FRÉTTIR Trúarbrögð Haldið upp á 70 ára afmæli Sel­foss­kirkju – Biskup fékk 12 egg Sérstök hátíðarmessa var í Selfosskirkju í dag, á pálmasunnudag, í tilefni af 70 ára afmæli kirkjunnar. Hænsnabóndi kom færandi hendi í afmælið með tólf egg úr íslenskum landnámshænum handa biskupi Íslands. 29. mars 2026 kl. 19:54ÍÞRÓTTIR Íshokkí SR Ís­lands­meist­ari kvenna í ís­hokkí í fyrsta sinn eftir víta­keppni SR varð í kvöld Íslandsmeistari kvenna í íshokkí eftir sigur í vítakeppni gegn SA. SR vann úrslitaeinvígi liðanna 3-1 og er Íslandsmeistari í fyrsta sinn í sögu kvennaliðs félagsins. 29. mars 2026 kl. 19:53INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vilja draga úr vægi verð­trygg­ing­ar fyrir árslok Ríkisstjórnin vill draga úr vægi verðtryggingar fyrir árslok. Forsætisráðherra telur ekki skynsamlegt að koma til móts við heimilin með því að lækka virðisaukaskatt á matvöru. 29. mars 2026 kl. 19:20ÍÞRÓTTIR Sund Birnir var einum hund­rað­asta úr sek­úndu frá EM lág­marki Íslandsmótinu í sundi í 50 metra laug lauk í Ásvallalaug í Hafnarfirði í kvöld. Tveir keppendur syntu sig inn á Evrópumótið í sumar og einn var grátlega nálægt lágmarkinu í sinni grein. 29. mars 2026 kl. 19:09ÍÞRÓTTIR Handbolti KA í und­an­úr­slit eftir há­spennu­leik gegn ÍBV Hans Steinar Bjarnaso

Share this article