- What: Road closures and difficult driving conditions are reported in various parts of Iceland due to snow and ice.
- Impact: Travelers in Iceland are advised to exercise caution due to slippery roads and closures.
Ófært var um Fjarðarheiði morguninn í morgun en búið er að opna veginn. Þar er þó yfirgefinn bíll á akrein og vegurinn einbreiður vegna þess og snjóa. Fólk er beðið um að sýna aðgát. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Austurlandi. Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði. Þungfært er á Þröskuldum og nokkuð víða snjóþekja, hálka eða hálkublettir á öðrum vestfirskum vegum. Þæfingur er í Almenningum og snjóþekja, hálka eða hálkublettir á flestum vegum Norðanlands. Annars staðar þar sem Vegagerðin hefur kannað aðstæður er víða hálka á vegum. Á Fjarðarheiði. Safnmynd.RÚV / Rúnar Snær Reynisson