Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ófært um Fjarðarheiði og þungfært á Fagradal

  • What: Road conditions in Iceland are difficult due to snow and ice.
  • Impact: Travel is affected on Fjarðarheiði and Fagradal.
Read Full Article →

Ófært er um Fjarðarheiði þennan morguninn og þungfært á Fagradal. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er mikið um snjóþekju þar en hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Austurlandi. Ófært er um Öxl og Breiðdalsheiði. Þungfært er á Þröskuldum og nokkuð víða snjóþekja, hálka eða hálkublettir á öðrum vestfirskum vegum. Þæfingur er í Almenningum og snjóþekja, hálka eða hálkublettir á flestum vegum Norðanlands. Annars staðar þar sem Vegagerðin hefur kannað aðstæður er víða hálka á vegum. Á Fjarðarheiði. Safnmynd.RÚV / Rúnar Snær Reynisson

Share this article