Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þor­steinn Pétur í eigin rekstur og stofnar félag

Read Full Article →

Þor­steinn Pétur Guðjóns­son, fyrr­verandi for­stjóri Deloitte á Ís­landi, hefur stofnað nýtt félag, Avensa ehf., sem bendir til þess að hann sé að hefja eigin starf­semi eftir að hafa látið af störfum hjá Deloitte í lok febrúar. Sam­kvæmt lög­birtingar­blaðinu var Avensa ehf. skráð í hluta­félaga­skrá í síðustu viku en til­gangur þess er sagður vera rekstur ráðgjafarþjónustu á sviði rekstrar og fjár­mála, kaup og sala verðbréfa, lána­starf­semi og kaup og sala annarra eigna ásamt skyldum rekstri. Þor­steinn Pétur Guðjóns­son er skráður fram­kvæmda­stjóri félagsins og prókúru­hafi. Stofnandi Avensa er Mar­besa ehf., sem Þor­steinn á til helminga á móti Birtu Mogen­sen eigin­konu sinni en hún situr jafn­framt í stjórn hins ný­stofnaða félags. At­hygli vekur jafn­framt að skoðunar­maður og endur­skoðandi Avensa er Jónas Gestur Jónas­son, lög­giltur endur­skoðandi, en hann er jafn­framt stjórnar­for­maður og með­eig­andi hjá Deloitte á Ís­landi. Greint var frá því í febrúar að Þor­steinn Pétur og stjórn Deloitte hefðu komist að sam­komu­lagi um að hann léti af störfum sem for­stjóri félagsins. Þar kom jafn­framt fram að hann hefði áður stigið til hliðar vegna dóms­máls sem lauk með sýknu og að leit væri hafin að nýjum for­stjóra. Þor­steinn hafði verið for­stjóri Deloitte frá 2019 og starfað hjá félaginu í sam­tals 26 ár þegar hann lét af störfum. Hann steig til hliðar í janúar eftir að ákært var í máli á hendur honum en var síðan sýknaður af ákærunni í febrúar. Sjá einnig Forstjóri Deloitte sýknaður

Share this article