Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Um 24 prósent nýta sér stysta vistunartímann

Read Full Article →

Innlent | mbl | 30.3.2026 | 15:58 Um 24 prósent nýta sér stysta vistunartímann Færri foreldrar skrá börn sín nú í 40 klukkustunda vistun eða lengur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Leikskólamál Leikskólastarfsfólk leitar til Kópavogsbæjar Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Leita húsnæðis fyrir leikskóla Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Óttast að ný leið leggist þungt á vinnandi foreldra » Fleiri tengdar fréttir Um 36 prósent foreldra hafa stytt skráðan vistunartíma barna sinna vegna innleiðingar á Leikskólaleiðinni í Reykjavík 1. apríl næstkomandi. Nú eru 24 prósent barna með 36 klukkustunda vistun eða minna, miðað við 9 prósent í október í fyrra. Börnum með 38 stunda vistun eða minna hefur fjölgað úr 10 prósentum í 23 prósent. Samtals eru því 47 prósent barna með skráðan vistunartíma sem er 38 stundir eða skemur, samanborið við 19 prósent í byrjun október. Þá skrá mun færri foreldrar börn sín í 40 klukkustunda vistun eða lengur á viku en áður, eða 27 prósent nú, miðað við 44 prósent í október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Frétt af mbl.is Svona er nýja Reykjavíkurleiðin Stéttarfélög óttast fátækragildru Umtalsverðar breytingar á gjaldskrá leikskóla Reykjavíkurborgar voru meðal breytinga sem kynntar voru um miðjan febrúar. Meðal annars er boðið upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, lægra gjald fyrir 38 tíma vistun, og aukinn afslátt fyrir einstæða foreldra og tekjulágar fjölskyldur. Áfram er þó hægt að skrá börn í allt að 42,5 stunda vistun, líkt og áður, en það kostar meira. Foreldrum var boðið að breyta skráningu barna sinna fyrir gildistöku breytinganna 1. apríl og hefur vistun umfram 38 stundir dregist saman um 28 prósent. Í október voru 81 prósent barna skráð með yfir 38 stundir en nú eru þau 53 prósent. Formenn stéttarfélaga eins og VR og BSRB gagnrýndu tillögurnar þegar þær voru kynntar og töldu að þær myndu bitna mest á foreldrum með ósveigjanlegan vinnutíma sem hafi lítið bakland. Töluðu formennirnir um fátækragildru í því samhengi. Stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara (FL) gaf hins vegar lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaganna. Frétt af mbl.is Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Samstarf við foreldra gengið vel Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg er haft eftir Rögnu Kristínu Gunnarsdóttur, leikskólakennara í Vogabyggð, að hjá þeim hafi tveir þriðju foreldra breytt vistunartíma barna sinna. Það létti sérstaklega á eftir klukkan þrjú á daginn og á föstudögum. Samstarfið við foreldra hafi verið gott að þau hafi fundið fyrir samstöðu. Markmiðið með breytingunum var að bæta starfsaðstæður og auka stöðugleika í leikskólum. Með nýrri leið er stefnt að því að draga úr fáliðun, auka fyrirsjáanleika, efla faglegt starf og tryggja stöðugri mönnun yfir árið, líkt og sagði í kynningu á breytingunum á sínum tíma. Frétt af mbl.is Óttast að ný leið leggist þungt á vinnandi foreldra Tengdar fréttir Leikskólamál Leikskólastarfsfólk leitar til Kópavogsbæjar Myndir: Grandaborg opnuð eftir 1.240 daga bið Leita húsnæðis fyrir leikskóla Gefa lítið fyrir gagnrýni stéttarfélaga Óttast að ný leið leggist þungt á vinnandi foreldra » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íslensku strákarnir sem mæta United-stjörnu Páskahamborgari með bragði frá New Orleans er mættur á Grill 66 hjá Olís Frakkland U21 – Ísland U21 kl. 17, bein lýsing Um 24 prósent nýta sér stysta vistunartímann Aðeins eitt félag sem kemur til greina hjá Aroni Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fyrirhuguð malbikun dugir ekki Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Viðsnúningur í rekstri hjá RÚV Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Fá ekki leyfi til að rífa braggann Vitnum boðin áfallahjálp Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Almenningur borgar skattahækkanir Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri Nýjast á mbl.is » Íslensku strákarnir sem mæta United-stjörnu Páskahamborgari með bragði frá New Orleans er mættur á Grill 66 hjá Olís Frakkland U21 – Ísland U21 kl. 17, bein lýsing Um 24 prósent nýta sér stysta vistunartímann Aðeins eitt félag sem kemur til greina hjá Aroni Umræðan Hallalaust í boði heimilanna Sýnið á ESB-spilin fyrir fram en ekki eftir á Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afleit staða til að eiga við faraldur Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra Segja fyrirsætuskrifstofur hafa unnið með Epstein Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Mest lesið Í gær Í vikunni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Fá ekki leyfi til að rífa braggann Vitnum boðin áfallahjálp Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi „Þetta fólk var ekki að gera þetta í fyrsta skipti“ Almenningur borgar skattahækkanir Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Flugi til Parísar aflýst Eftirlýstur og brjálaður í miðbænum Aldrei bar skugga á okkar vináttu Versluninni Ríteil Kids lokað Rúta hafnaði utan vegar á heimavelli Fljúgandi skíði á þjóðveginum Cohen var hinn fullkomni gestgjafi Snjóflóð féll á veginn og rúta í vandræðum Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið „Ég er harmi slegin“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Munu þurfa frá að hverfa á Akureyri

Share this article