Samtökin Solaris segja Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, hafa haft fulla vitneskju um allt ferlið þegar samtökin aðstoðuðu flóttafólk frá Palestínu yfir landamærin til Egyptalands. Fólkið hafi allt fengið útgefið dvalarleyfi frá Útlendingastofnun, undirstofnun hennar sem dómsmálaráðherra, og stjórnvöld hafi skipulagt flug þeirra til Íslands. Guðrún hafi því farið með ósannindi í ummælum sínum í þættinum Spursmálum 28. nóvember í fyrra, þar sem hún sagði engan hafa vitað deili á fólkinu og að því hafi verið komið yfir landamærin með mútugreiðslum. Solaris hefur stefnt Guðrúnu fyrir meiðyrði vegna ummælanna. Guðrún sagðist í Facebook-færslu ætla að stefnan væri tilraun til að takmarka tjáningarfrelsi hennar og að hún myndi taka til varna í málinu, með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi. Í yfirlýsingu frá Solaris er því mótmælt að það séu þjóðarhagsmunir að hún fái að fara með ósannindi án þess að samtökin fengju rönd við reist. Samtökin segjast ekki ætla að taka þátt í frekara „hnútkasti“ við Guðrúnu á samfélagsmiðlum eða í fjölmiðlum, heldur leyfa dómsmálinu að hafa sinn gang.