Innlent | mbl | 31.3.2026 | 17:45 Þöggunartilburðir aðgerðasinna þekkt stef Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Anton Brink Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Þórunn heimsækir Pólland og Úkraínu Vilja bann við því að hylja andlit á almannafæri Regluverk orkumála einfaldað „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar » Fleiri tengdar fréttir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa verið steinhissa þegar henni var birt stefna frá samtökunum Solaris vegna meintra meiðyrða hennar. Guðrún ræddi við mbl.is um málið að loknum blaðamannafundi í Valhöll í dag þar sem efnahagstillögur Sjálfstæðisflokksins voru kynntar. Greindi Guðrún frá því í gær að henni hefði verið stefnt og krafist þess að fjögur ummæli hennar í Spursmálum þann 28. nóvember yrðu dæmt dauð og ómerk og þess krafist að hún greiddi fjórar milljónir í miskabætur. Frétt af mbl.is Krefja Guðrúnu um fjórar milljónir vegna meiðyrða Tímasetningin kom á óvart Guðrún segist hafa verið steinhissa er henni var birt stefnan enda sé um að ræða fyrstu stefnuna sem henni sé birt um ævina og að tímasetning hennar sé sérkennileg. „Ég skil þetta ekki enn eiginlega vegna þess að þau ummæli sem er krafist að verði dæmd dauð og ómerk, þau féllu 28. nóvember, og núna eru liðnir fjórir mánuðir. Ef að þetta olli svona mikilli vanlíðan, að þá hefði ég kannski búist við þessu fyrr. Þannig að tímasetningin finnst mér sérstök,“ segir formaðurinn sem telur stefnuna vera politíska í eðli sínu. Í ummælum Guðrúnar, sem nú er krafist að verði dæmd dauð og ómerk, er hvergi minnst á Solaris né fulltrúa þeirra á nafn. „Sko, í þessum ummælum nefni ég engin nöfn, hvorki af einstaklingum né samtökum eða öðru, en ég segi að einstaklingar hafi farið að landamærum Palestínu. Ég ætla svo sem ekkert að fara kannski í einhver smáatriði þeirra orða,“ segir Guðrún aðspurð hvort ummælin hafi beinst gegn samtökunum. Frétt af mbl.is Segja Guðrúnu hafa haft vitneskju um allt ferlið Hlýtur að mega verja hagsmuni kjósenda með orðum Í færslu sinni í gær sagði Guðrún samtökin vera að reyna hefta tjáningarfrelsi sitt með stefnunni. Formaðurinn segist ekki geta fullyrt um það að tjáningarfrelsið standi hallari fæti nú en áður en það sama gildi um tjáningarfrelsi og önnur frelsi, það þurfi að berjast fyrir því. Segir Guðrún það vera þekkt stef að samtök aðgerðasinna, eins og Solaris, beiti þöggunartilburðum. Þetta hafi verið gert í löndunum í kringum okkur og nú sé þetta raunveruleikinn hér á landi. „En auðvitað er það líka sérstakt og ég verð kannski að fá að nefna það að ég er kjörinn fulltrúi og ég sit á Alþingi í umboði minna kjósenda. Í lýðræðissamfélagi er það þannig að ég sit þar í umboði fólks sem hefur kosið mig til þess að verja hagsmuni sína og þá hlýt ég að mega gera það með orðum. Ég hef bara orð mín til þess. Og það er kannski ástæðan fyrir því að Alþingi nýtur friðhelgi fyrir því sem þú segir í þeim sal,“ segir Guðrún og bætir því að lokum að áhyggjuefni sé að einhverjum detti í hug að hefta tjáningarfrelsi annars fólks. Tengdar fréttir Alþingi Þórunn heimsækir Pólland og Úkraínu Vilja bann við því að hylja andlit á almannafæri Regluverk orkumála einfaldað „Við vitum öll hvernig fyrri blekkingar enduðu“ Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Schwarzenegger heiðraður í Belfast Þöggunartilburðir aðgerðasinna þekkt stef Haítí – Ísland, staðan er 0:0 Eldingaviðvaranir og leiknum mögulega aflýst Tilbúinn í samstarf við alla flokka Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nærri 30.000 manns skrifað undir Héraðsdómur skammar SKE Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » Schwarzenegger heiðraður í Belfast Þöggunartilburðir aðgerðasinna þekkt stef Haítí – Ísland, staðan er 0:0 Eldingaviðvaranir og leiknum mögulega aflýst Tilbúinn í samstarf við alla flokka Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vonast til að létta verulega á Landspítalanum „Innviðaskuldin er svo mikil“ Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana