- What: A news article discusses a disagreement between politicians regarding a bill to link social security to the wage index in Iceland.
- Impact: The disagreement centers on the potential risks and responsibilities associated with the proposed bill.
Innlent | mbl | 16.2.2026 | 17:30 Kristrún segir gagnrýnina byggða á misskilningi Guðrún Hafsteinsdóttir og Kristrún Frostadóttir. Samsett mynd mbl.is/Eyþór Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir frumvarp um að tengja almannatryggingar við launavísitölu vera varhugavert og óábyrgt. Það sé með ólíkindum að hagfræðingar innan ríkisstjórnarinnar séu þeir einu sem tali fyrir því máli. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir málið almennilega unnið og fagnar því að það sé loks að komast til framkvæmda. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag tók Guðrún frumvarpið fyrir og sagði Sjálfstæðisflokkinn ekki á móti því að fólk í almannatryggingakerfinu njóti sanngirni. Aftur á móti teldi flokkurinn frumvarpið verulega varhugavert og óábyrgt. Frétt af mbl.is Vandræðagangur bótafrumvarps „Af hverju var ekki leitað eftir umsögn Seðlabankans?“ „Nú er það þannig að hæstvirtur forsætisráðherra og hæstvirtur fjármálaráðherra hafa hingað til notið trausts sem hagfræðingar í samfélaginu. Því er það með nokkrum ólíkindum að hæstvirtur forsætisráðherra og hæstvirtur fjármálaráðherra skuli vera með nær einu hagfræðingar þessa lands sem tala fyrir þessu máli og telja þetta mál af hinu góða,“ sagði Guðrún Benti hún á að búið væri að heyrast varnarorð m.a. frá Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði Íslands, Alþýðusambandi Íslands og öðrum hagfræðingum varðandi frumvarpið. Þá hafi Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri varað við frumvarpinu og tekið fram að ekki hafi verið kallað eftir umsögn Seðlabankans áður en farið var í vegferðina. „Því vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra: Af hverju var ekki leitað eftir umsögn Seðlabankans þegar stærðargráðan og áhætta þessa máls er augljós?“ Frétt af mbl.is Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð við Seðlabankann „Við höfum grandskoðað þetta mál“ Svaraði Kristrún með þeim hætti að málið hafi verið eitt af þeim sem lögð hafi verið áhersla á frá upphafi ríkisstjórnarsambandsins. Þá væri málið í takti við stefnu ríkisstjórnarinnar og Samfylkingarinnar, þ.e. að lífeyrir myndi fylgja launum. „Ég hef auðvitað orðið vör við þá umræðu sem hér hefur átt sér stað varðandi ákveðin atriði í þessu frumvarpi en það hefur komið á daginn, forseti, og ég leyfi mér að fullyrða það að veigamestu atriðin sem stjórnarandstaðan og álitsgjafar gagnrýndu voru byggð á misskilningi. Það er ekki tvöfaldur lás í þessu kerfi, það er ekki bæði verðbólga og laun sem eru bætt upp heldur stendur það mjög skýrt í greinargerð að taka á mið af launavísitölu og taka tillit til þess að það sé ekki tvöfaldur lás í því samhengi. Þetta geta allir orðið sér úti um, þeir sem lesa málið almennilega, sagði Kristrún. Vísaði hún þar til þeirrar gagnrýni að bótaþegar muni að jafnaði fá meiri hækkanir en samið er um í kjarasamningum, sérstaklega í tilviki láglaunahópa, og að þegar verðbólga hækkar umfram launavísitölu verði hinn tvöfaldi lás launavísitölu og verðlagsþróunar til þess að bætur hækki tvisvar, einu sinni vegna verðbólgu og svo aftur vegna hækkunar á launum, sem ætlað er að mæta undangenginni hækkun verðlags. „Hvað varðar umsögn Seðlabankans, þá er það ekki ríkisstjórnin sem ákveður nákvæmlega hvaða umsögnum er kallað eftir. Ég vil samt halda því til haga að í fyrsta lagi er öllum frjálst að senda hér inn umsögn. Í öðru lagi er það ekki þannig, þrátt fyrir allt, að Seðlabankinn semji lög um almannatryggingar. Það eru stjórnmálamenn hér inni. Það er löggjafinn sem gengur frá slíkum atriðum. Við höfum grandskoðað þetta mál. Við lofuðum þessu fyrir kosningar. Við erum að standa við þetta eftir kosningar. Þetta er reyndar það mál sem flestir stjórnmálaflokkar í gegnum tíðina hafa lofað þessum hópum en ekki staðið við, þannig að ég fagna því að þetta sé að komast til framkvæmda. Þetta er almennilega gert, það liggur alveg fyrir öllum þeim sem hafa lesið almennilega greinargerð þessa frumvarps.“ Frétt af mbl.is Ekki er hlustað á varúðarorð Ríkisstjórnin eigi að hlusta á Seðlabankann Tók þá Guðrún á ný til máls og sagði það flestum ljóst að ákvæði laganna samkvæmt orðanna hljóðan tryggi ekki að hinn tvöfaldi lás jafnist út. „Hvaða feluleikur er þetta, virðulegi forseti? Er þetta ekki bara merki um samstöðuleysi þessarar ríkisstjórnar? Ég vil einnig fá að taka hér fram að þótt Seðlabankinn skrifi ekki lög er það samt sem áður á ábyrgð Seðlabankans að halda verðbólgu niðri í landinu. Þegar gera á alvarlegar breytingar og setja ríkisfjármálin á sjálfstýringu, í sjálfvirkan útgjaldavöxt, þá hefur það vitaskuld áhrif á verðbólguvæntingar. Þá á Seðlabankinn erindi og þá á ríkisstjórnin að hlusta á Seðlabankann.“ Forsætisráðherra hefur ekki áhyggjur af málinu Spurði þá forsætisráðherrann hvort fólk virkilega tryði því að ríkissjóður myndi fara á hliðina vegna bótagreiðslna til öryrkja og eldra fólks. „Er það það sem háttvirtur þingmaður, formaður Sjálfstæðisflokksins, er að halda hér fram, að það að lífeyrir fylgi launum hjá þeim sem eru á þessum lágu tekjum sé að fara að setja ríkissjóð á hausinn? Það er ekki rétt. Það er ekki tvöfaldur lás í þessu frumvarpi og það liggur líka alveg fyrir að fjárveitingarvaldið er Alþingis. Það er Alþingis á hverju einasta ári hér inni. Það er skýrt í greinargerðinni að ekki er um tvöfaldan lás að ræða.“ „Þessi flokkur er fjármagnaður í fjárveitingum á vegum Alþingis ef að tekið verður mið af fjármálaáætlun og ég hef ekki áhyggjur af þessu máli og ég fagna því,“ sagði Kristrún að lokum. Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Er ekki kærastan sem Sturla hélt framhjá Sakfelldar fyrir mótmæli í hvalveiðiskipum Gengur langt ef þess þarf Tímabilið búið eftir aðeins tvo leiki Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Höfum verið of kurteis Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Alma auglýsir tvær forstjórastöður Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Er ekki kærastan sem Sturla hélt framhjá Sakfelldar fyrir mótmæli í hvalveiðiskipum Gengur langt ef þess þarf Tímabilið búið eftir aðeins tvo leiki Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Telur andstöðu við friðlýsingu ekki skaða samstarf Vindhraði setur skipum skorður Erfiðast að læra íslensku Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Alma auglýsir tvær forstjórastöður Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri