Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Telur Kristrúnu draga fylgið niður

Read Full Article →

Innlent | Kosningar | mbl | 14.5.2026 | 11:40 Telur Kristrúnu draga fylgið niður Konráð S. Guðjónsson dregur líkindi milli inngrips Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og misheppnaðs forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur. Samsett mynd/mbl.is Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Segir ákveðna aðila hafa farið langt yfir öll mörk Segir Kristrúnu fara með dylgjur X26: Oddvitar í Hafnarfirði takast á » Fleiri tengdar fréttir Konráð S. Guðjónsson hagfræðingur telur kannanir benda til þess að inngrip Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra í kosningabaráttu flokks síns í sveitarstjórnum sé að koma niður á fylginu. Þetta kemur fram í nýjasta þætti Þjóðmála þar sem hann er gestur Gísla Freys Valdórssonar. Ásamt honum er gestur í þættinum Ingvi Þ. Georgsson hagfræðingur. Samfylkingin á siglingu en ekki meir „Í Reykjavík er að teiknast upp mjög sterkt trend, Sjálfstæðisflokkurinn er á hvínandi siglingu og Samfylkingin er að gefa eftir. Og mér finnst svolítið áhugavert, hvort sem það er tilviljun, og ég hugsa að það sé ekki að öllu leyti tilviljun að það sama er að gerast hér í Kópavogi. Allavega þær kannanir sem hafa komið, sem eru tvær, þar hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið að bæta í og Samfylkingin að gefa eftir og mér finnst það eiginlega sérstaklega áhugavert eftir að forsætisráðherra hefur stigið svona hressilega og eiginlega fordæmalaust inn. Það er ekki fordæmalaust að forsætisráðherra sé að koma á fundi en með svona látum, það er eiginlega, ég veit ekki til þess að það hafi áður gerst. Og mann grunar að það sé ekki alveg að virka heldur jafnvel bara að virka á móti þeim,“ segir Konráð. Mikla athygli vakti fyrir skemmstu þegar Kristrún Frostadóttir boðaði til blaðamannafundar fyrir utan Jysk í Kópavogi þar sem hún kynnti áherslur Samfylkingarinnar í leikskólamálum. Þar boðaði hún meðal annars lögfestingu leikskólastigsins sem fyrsta skólastigsins og stóraukin útgjöld til málaflokksins sem þó hefur hvorki verið rætt um í ríkisstjórn né komið á borð fjárlaganefndar. Frétt af mbl.is Nýtt útspil Samfylkingar Þá hefur Kristrún vaðið í Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi og látið þung orð falla um þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í bænum á líðandi kjörtímabili til þess að ná tökum á vandamálum sem þjakað hafa leikskólakerfið þar í bæ en ekki síður í Reykjavík þar sem börn þurfa að bíða í nærri tvö ár eftir því að komast á leikskóla. Frétt af mbl.is Skaut föstum skotum að Kópavogi í ávarpi sínu Sömu örlög og Katrínar? Konráð dregur í máli sínu líkindi milli þessa og forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur í forsetakosningunum 2024. „Ég á þessa pælingu ekki heldur heyrði hana um daginn að það væri ákveðin hliðstæða í því þegar Katrín Jakobsdóttir fór í forsetaframboð, þá var fólk ekki alveg að fíla það að forsætisráðherra ætlaði sér að verða forseti. Og það endurspeglast kannski í þessu að fólk vill bara að sveitarstjórnarmálin séu bara sveitarstjórnarmál. Forsætisráðherra á ekki að vera að skipta sér svona af þeim allavega og beita sér með svona rosalega miklum hætti,“ segir Konráð. Virðist hafa stuðað fólk Og Ingvi bætir við: „Þetta virðist hafa stuðað fólk í hennar eigin flokki líka.“ Og Konráð bregst við: „Já, mann grunar það. Ég skil alveg pælinguna. Hún er náttúrulega mjög vinsæl og þau hafa rosalega sterkt fylgi á landsvísu. Heyrðu, notum bara Kristrúnu í þetta en já ég er ekki viss um að fólk sé að taka því þannig. En eins og við sjáum þá eru þetta ekki margar kannanir og það er margt sem getur gerst þarna þannig að við skulum sjá til.“ Frétt af mbl.is Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Þá blandar þáttarstjórnandi sér í umræðuna: „Mæling í febrúar eða byrjun mars. Þá var Samfylkingin á hvínandi siglingu. Og það hefur heldur betur dalað það fylgi og það hefur væntanlega verið rakið til Kristrúnar. Það er áður en Jónas Már tók við sem oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Þannig að væntingarnar hafa væntanlega verið töluverðar í Kópavogi.“ Hefur víðar drepið niður fæti Inngrip forsætisráðherra hefur hins vegar ekki einskorðast við baráttu Samfylkingarinnar í Reykjavík og Kópavogi. Þannig blandaði hún sér einnig inn í baráttuna í Fjarðabyggð. Þar gagnrýndi hún harkalega þær aðgerðir sem meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa gripið til í því skyni að bæta stöðu leikskólamála í sveitarfélaginu. Svo rammt kvað að viðbrögðum við afskiptum forsætisráðherra að varaformaður Sjálfstæðisflokksins taldi sig þurfa að leggja orð í belg og taldi hann Kristrúnu Frostadóttur senda íbúum í Fjarðabyggð kaldar kveðjur: Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Segir ákveðna aðila hafa farið langt yfir öll mörk Segir Kristrúnu fara með dylgjur X26: Oddvitar í Hafnarfirði takast á » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Telur Kristrúnu draga fylgið niður Hættir störfum í Þorlákshöfn Hætta rekstri þotnanna fyrr en áætlað var Messi fór á kostum Mun segja af sér og skora á Starmer Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Samsæri? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert MAST veitir Ísteka skilyrt starfsleyfi „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar „Við vorum algerlega búnir á því“ „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Ólík skuldaþróun FÍA neitar því að standa í aðgerðum Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Nýjast á mbl.is » Telur Kristrúnu draga fylgið niður Hættir störfum í Þorlákshöfn Hætta rekstri þotnanna fyrr en áætlað var Messi fór á kostum Mun segja af sér og skora á Starmer Umræðan Fyrstu skrefin að framtíðinni Samsæri? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiddi sama flugið tvisvar Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Mest lesið Í gær Í vikunni Greiddi sama flugið tvisvar „Við vorum algerlega búnir á því“ „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Borgin styttir opnunartíma: Veldur ákveðnum áhyggjum Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Ólík skuldaþróun FÍA neitar því að standa í aðgerðum Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Deilt um uppbyggingu í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Eins og borgin hafi kveikt í húsinu

Share this article