Innlent | Sunnudagsblað | 31.3.2026 | 6:30 Bríet fer í tónleikatúr um páskana Bríet leggst brátt í mikil ferðalög með tónlist sína. Ljósmynd/Sigurður Pétur Ásdís Ásgeirsdóttir [email protected] Setja bókamerki Bríet ætlar á páskatúr og kemur við á fjórum stöðum. Eftir það bíður hennar heimurinn. Hvað ertu að gera um páskana? Ég er að fara í páskatúr að hita upp fyrir komandi túra en ég er að fara að spila mikið erlendis á næstunni. Þetta er orðið árlegt; að fara í páskatúr, en ég byrja í Bæjarkirkju í Borgarnesi, fer svo að spila á Dalíu í Búðardal, Verbúðinni á Patreksfirði og enda á Vagninum á Flateyri með miðnæturtónleika. Þetta verða krúttlegir tónleikar með kósí stemningu. Hvaða efni ætlar þú að spila? Ég spila nýtt og gamalt í bland en mun einblína á nýju plötuna mína Act 1 þar sem ég spila kántrítónlist á ensku. Ég tók hana upp í Nashville og reyndar víðar, í Mývatnssveit og í bænum. Ég mun spila hana á næstu túrum en 13. apríl fer ég á Evróputúr með Ásgeiri Trausta. Ég mun hita upp fyrir hann í Bretlandi, Þýskalandi, Sviss, Frakklandi, Belgíu, Tékklandi og víðar. Svo í haust fer ég á Ameríkutúr með Daða Frey. Hvað er það við kántrí sem heillar þig? Það er einhver sannleikur og sögumennska og þessi hráleiki. Ég hef áður samið þannig lög en sett þau meira í poppbúning. Með nýju plötunni, og plötunum sem koma á eftir, langar mig að leyfa fólki að kynnast mér betur. Í Act 1 fær fólk að sjá kántríhliðina á mér, á Act 2, sem kemur út í haust, fær dramatíska og ýkta hliðin að njóta sín. Á þriðju plötunni, Act 3, sýni ég svo popphliðina á mér. Þá fæ ég fólk til að dansa. Um hvað fjalla textarnir? Ég sem mikið um ástina og tilfinningarnar. Það er alltaf einhver vinkill sem maður getur speglað sig í. Nýlega var ég að semja lag með KK og það var gaman að setja sig í öðruvísi stellingar og hugsa öðruvísi. Það er alltaf eitthvað sem gerist á hverjum degi sem hægt er að semja um. Er ekkert von á stærri tónleikum? Ég er með tónleika í Hljómahöll í maí. Annað er ekki á döfinni þó ég gæti skipt um skoðun á morgun. Ég er núna að safna kröftum og efni. Eftir að dramaplatan Act 2 kemur út er aldrei að vita hvað maður gerir. Rétt fyrir páska leggur BRÍET land undir fót ásamt hljómborðsleikaranum Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni og trommaranum Bergi Einari Dagbjartssyni. Þau koma við í Borgarnesi, Búðardal, á Patreksfirði og Flateyri. Miðar fást á tix.is. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Blanda saman skyri og orkudrykk Tveir handteknir í tveimur líkamsárásum Gular viðvaranir austanlands Héraðsdómur skammar SKE Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gistiheimili í húsi ríkislögreglustjóra Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Viðsnúningur í rekstri hjá RÚV Hópur ferðamanna setti allt í vasana Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan lýsir eftir Sindra Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar „Skynja rosalega mikla reiði“ Gekk í skrokk á fyrrverandi kærustu sinni Krefja Guðrúnu um fjórar milljónir vegna meiðyrða Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Fjórir gripnir við stuld í fataverslun Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Nýjast á mbl.is » Blanda saman skyri og orkudrykk Tveir handteknir í tveimur líkamsárásum Gular viðvaranir austanlands Héraðsdómur skammar SKE Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar „Þar sem ESB er orðið að sambandsríki“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsaka netárásir á vefsíður ESB Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Lögbann á umferð um einkaveg við Iðu Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan lýsir eftir Sindra Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar „Skynja rosalega mikla reiði“ Gekk í skrokk á fyrrverandi kærustu sinni Krefja Guðrúnu um fjórar milljónir vegna meiðyrða Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Fjórir gripnir við stuld í fataverslun Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss