Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skíði, tónlist og helgihald um páskana

Read Full Article →

Mikið er um að vera víðsvegar um landið um páskahelgina. Margir eru á faraldsfæti, bæði innanlands og utan, enda ein stærsta ferðahelgi ársins framundan. Skítamórall og Bríet fyrir vestan Venju samkvæmt fer tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fram á Ísafirði um helgina. Þetta er í 22. skiptið sem hún er haldin og munu Skítamórall, Friðrik Dór og Sykur meðal annars stíga á stokk. Þá er hafin Skíðavikan á Ísafirði. Þar verður meðal annars hægt að komast í skíðaskotfimi, gönguskíðaferð og fjallaskíðaferð. Opið verður á skíðasvæðum bæjarins alla dagana. Tónlistarkonan Bríet verður fyrir vestan um helgina. Hún mun spila á skírdag í Verbúðinni á Patreksfirði og halda miðnæturtónleika á Vagninum á Flateyri á föstudaginn langa. Sleðabrekkur fyrir norðan Mikið er í boði á Akureyri þar sem páskadagskrá verður víða um bæinn. Opið verður á vinsælum skíðasvæðum í Hlíðarfjalli auk þess sem gönguskíðabrautir og sleðabrekkur verða opnar í Kjarnaskógi ef aðstæður leyfa. Hægt verður að heimsækja söfn bæjarins, stinga sér í sund og fara í reiðtúr. Í Fjallabyggð verður tónlistardagskrá á bæði Siglufirði og Ólafsfirði. Bæði verður opið á skíðasvæðinu í Skarðsdal og á Ólafsfirði. Á því fyrrnefnda verður lifandi tónlist um helgina ef veður leyfir. Hipsumhaps í Breiðdalsvík Fyrir austan verður haldið Páskafjör í Fjarðabyggð með viðburðum víða um sveitarfélagið. Hljómsveitin Hipsumhaps treður upp í Frystihúsinu á Breiðdalsvík á laugardagskvöld. Opið verður á skíðasvæðinu í Oddsskarði, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, alla daga. Þar verða meðal annars flugeldasýning og plötusnúður á laugardagskvöldið. Þá verður haldin skíðamessa við skálann á páskadag og er skíðafólk hvatt til að mæta í sparifötunum. Á laugardag verður Náðarganga gengin frá Valþjófsstaðakirkju að Skriðuklaustri. Þar verður páskaeggjaleit haldin fyrir börn. Píslarsund í Gróttu Á höfuðborgarsvæðinu heldur Sund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur Píslarsund í Gróttu á föstudaginn langa. Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum verður páskaeggjaleit 1.-6. apríl og opið verður á skíðasvæðinu í Bláfjöllum alla daga páskahátíðarinnar ef veður leyfir. Á Hvolsvelli verður haldið árlegt Bakgarðshlaup á föstudaginn langa. Grínistinn Pétur Jóhann treður upp á Laugarvatni á laugardagskvöld og Páskaball fer fram í Vestmannaeyjum. Þar koma fram Aron Can, Daniil og Ízleifur.

Share this article