Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Unga fólkið til fyrirmyndar um helgina

  • What: Description of an Easter event in Iceland
  • Impact: No security relevance
Read Full Article →

Gleðin var allsráðandi á Ísafirði um páskana. Þar fór fram tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður og fjöldi fólks renndi sér á skíðum í rjómablíðu. Að sögn Gísla Úlfarssonar, eiganda verslunarinnar Hamraborgar, er helgin sú annasamasta á ári hverju. Hann segir síðustu daga hafa gengið glimrandi vel fyrir sig. „Þeir voru hérna, bróðir minn, sonur minn og tilvonandi tengdasonur, og stóðu vaktina. Svo þegar allt fyllist hérna eftir að böllin eru búin er búðin bara kjaftfull. Þá komast ekki fleiri inn,“ segir Gísli sem rekur verslunina ásamt Úlfi bróður sínum. „Svo er svo gaman að því að í hópi þessa unga fólks sem er að skemmta sér er fullt af ungu fólki sem hefur unnið hérna eða er að vinna hérna. Það kemur bara og grípur í.“ Verslunin er opin allan sólarhringinn tvo daga á ári, í gær og í fyrradag. Gísli segir margar hendur vinna létt verk og að gestir Hamraborgar hafi ekki verið til neinna vandræða um helgina. „Þrjár manneskjur anna þessu alls ekki en með hjálp þessa frábæra starfsfólks og fyrrverandi starfsfólks er þetta mjög ljúft og mjög gaman. Það er líka mjög gaman á nóttunni vegna þess að það eru allir svo glaðir. Fólk kemur hingað og bíður eftir leigubílnum og hittir vini og lýsingin er bara gleði. Unga fólkið er til fyrirmyndar.“ Hátíðin fór fram úr öllum væntingum Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður, tekur í sama streng. Hann segist hæstánægður með helgina og háttsemi tónleikagesta. „Þetta gekk svo ótrúlega vel. Það eina sem ég get kvartað sjálfur yfir og við í okkar hópi er að þetta fór allt svo vel og hratt fram einhvern veginn að við vorum bara að rembast við að reyna að njóta augnabliksins,“ segir Kristján. Hann segir það besta við hátíðina vera að þangað komi tónlistarfólk úr öllum áttum. Í því felist tækifæri fyrir fólk til þess að kynnast og víkka tónlistarsmekk sinn. Þá veðrið leikið við tónleikagesti sem hlýttu á fjölbreytt tónlistaratriði. „Þetta fór bara langt fram úr öllum okkar væntingum í alla staði. Okkur finnst gestir Aldrei fór ég suður vera stórstjörnur í okkar augum. Þau standa sig svo vel í að skemmta sér fallega á þessari stóru samkomu.“

Share this article