Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvaða nöfn nýbura voru vinsælust á síðasta ári?

  • What: Popular baby names in Iceland for 2025
  • Impact: Reflects cultural and naming trends
Read Full Article →

Það getur verið spennandi en um leið stressandi fyrir foreldra að finna nafn sem hæfir nýfæddu barni þeirra. Á meðan sumir halda í hefðirnar og nefna eða skíra börn sín í höfuðið á ættingjum eða vinum eru aðrir sem vilja feta ótroðnar slóðir. Svo koma ár þar sem ákveðin nöfn virðast einfaldlega vera í tísku. En hver skyldu vinsælustu nöfnin árið 2025 vera? Þjóðskrá hefur tekið saman lista . Matthildur og Birnir langvinsælust Matthildur og Birnir voru vinsælustu eiginnöfn nýfæddra barna á síðasta ári. Þrjátíu og þrír drengir fengu nafnið Birnir og 34 stúlkum var gefið nafnið Matthildur. Næst vinsælustu nöfnin eru Matthías og Embla, en 29 drengir fengu nafnið Matthías og 25 stúlkur nafnið Embla. Þá nutu nöfnin Jökull og Emil, Salka og Emma einnig talsverðra vinsælda. Tuttugu og sex drengir fengu nöfnin Jökull og Emil, 23 stúlkur hlutu nafnið Salka og 21 stúlka nafnið Emma. Stefán hástökkvarinn milli ára Ef síðustu tvö ár eru borin saman má sjá að drengjanafnið Birnir tekur stökk á listanum, úr fimmta sæti í það fyrsta, og skýtur þar nöfnunum Emil og Jökli ref fyrir rass. En þessi tvö nöfn voru það vinsælasta og næstvinsælasta árið 2024. Drengjanafnið Stefán kom sterkt inn á síðasta ári og er hástökkvarinn á topp 10 listanum yfir drengjanöfn, en Stefán fór úr 47. sæti í 9.11. sæti milli ára. Hildur nýtur vaxandi vinsælda Þegar kemur að stúlknanöfnum tekur Matthildur fyrsta sætið af Aþenu en Matthildur fer upp um fimm sæti milli ára. Hástökkvarinn á topp 10 listanum er nafnið Hildur, sem stekkur upp um heil 28 sæti, úr því 39. í 8.-11. sæti. Algengast að heita Jón og Guðrún Sem áður er eiginnafnið Jón algengasta nafnið hér á landi, en 4.897 einstaklingar bera það nafn. Með algengasta eiginnafninu er átt við alla núlifandi Íslendinga búsetta hér á landi. Nafnið Guðrún ber höfuð yfir herðar annarra kvenmannsnafna, en er þó í öðru sæti yfir algengustu eiginnöfn hér á landi. Alls 4. 314 konur hér á landi heita Guðrún. Meðal annarra algengra nafna eru Anna, Sigurður Guðmundur, Kristín, Sigríður, Gunnar, Margrét og Ólafur.

Share this article