Íslensk erfðagreining hagnaðist um 6,1 milljón Bandaríkjadala í fyrra, sem nemur 778 milljónum króna, samanborið við 4,8 milljóna dala, um 662 milljóna króna, hagnað árið áður. Rekstrartekjur námu 90,1 milljón dala, eða um 11,6 milljörðum króna, samanborið við 84,9 milljónir dala árið 2024, sem nemur 11,7 milljörðum króna. Eignir voru í lok árs 2025 bókfærðar á 66,4 milljarða dala, um 8,3 milljarða króna, og eigið fé nam 51,1 milljón dala, eða um 6,4 milljörðum króna. Lykiltölur / Íslensk erfðagreining ehf. 2025 2024 Tekjur 11.564 11.712 Eigið fé 6.398 5.639 Eignir 8.316 7.500 Afkoma 778 662 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .