Samanlagður hagnaður Brims, Ísfélagsins og Síldarvinnslunnar var 19,7 milljarðar króna árið 2025. Þetta má sjá á ársuppgjörum útgerðanna sem eru þær einu sem skráðar eru í íslensku kauphöllina. Hagnaður fyrirtækjanna jókst á milli ára en hann var samtals 17,5 milljarðar króna árið 2024. Samanlagðar rekstrartekjur útgerðanna árið 2025 voru 135,3 milljarðar króna en EBITDA, hagnaður fyrir vexti, skatta og afskriftir, voru 38 milljarðar. Eignir fyrirtækjanna nema samtals 394,4 milljörðum króna en eigið fé er tæplega 240 milljarðar króna. Stjórn Brims hefur lagt til að rúmlega fjórir milljarðar króna verði greiddir í arð fyrir rekstrarárið 2025. Síldarvinnslan greiðir út rúma þrjá milljarða, og Ísfélagið greiðir um 2,1 milljarð. Samtals greiða þau rúma því níu milljarða í arð.