Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hagnaðist um 8,2 milljarða en segja blikur á lofti

Read Full Article →

Hagnaður Síldarvinnslunnar nam 63,8 milljónum dala, eða um 8,2 milljörðum króna, á árinu 2025 og jókst um 44,6% frá fyrra ári. Útgerðarfélagið birti ársuppgjör í morgun sem sagt er frá á vef Viðskiptablaðsins . Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði út arður að fjárhæð 3.075 milljónir króna vegna rekstrarársins 2025, eða sem nemur 1,67 krónum á hlut. Það samsvarar 38,5% af hagnaði ársins. Tekjurnar jukust um 16,4 prósent og voru 48,6 milljarðar Tekjur Síldarvinnslunnar jukust um 16,4% milli ára og námu 378,4 milljónum dala, eða um 48,6 milljörðum króna. EBITDA-hagnaður félagsins jókst um 37,3% milli ára og nam 115,4 milljónum dala eða um 14,8 milljörðum króna. Eignir Síldarvinnslunnar námu 139,2 milljörðum króna í árslok 2026, skuldir 47,2 milljörðum króna og eigið fé 92,0 milljörðum króna. Áhrifin komi ekki að fullu fram fyrr en árið 2028 Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, segir að 2025 hafi verið gott rekstrarár sem hafi einkennst af mikilli eftirspurn og háum verðum á öllum helstu mörkuðum, auk þess sem veiðar og vinnsla gengu vel. „Þrátt fyrir sterkt rekstrarár eru blikur á lofti. Gjöld og skattar hækkuðu verulega og fyrirsjáanleiki í rekstrarumhverfi hefur minnkað, sem dregur úr vilja til fjárfestinga,“ segir Gunnþór. Óvissa um þróun veiðigjalda „Ráðgjöf í makríl og kolmunna dróst verulega saman milli ára en á móti kemur eru síldarstofnar að styrkjast og loðnustofninn virðist í betra ástandi en undanfarin ár. Aukin spenna í alþjóðamálum hefur áhrif á verð aðfanga, s.s. olíuverð, og þannig á verðbólguþróun hérlendis sem og erlendis.“ Gunnþór segir að óvissa vegna hækkunar veiðigjalda komi ekki til með að hafa áhrif fyrr en á árinu 2026 og inn í framtíðina. „Veiðigjöld hækkuðu umtalsvert eftir harðar deilur á vorþingi Alþingis á síðasta ári. Gjöld á þorsk, ýsu og makríl hækkuðu verulega á milli ára, en gjöld á síld urðu lægri en okkar áætlanir gerðu ráð fyrir. Áhrif hækkana koma þó ekki að fullu fram fyrr en árið 2028. Fyrirsjáanleiki í útreikningi veiðigjalda er takmarkaður og því óvissa um hvernig gjöldin koma til með að þróast.“ Hagræðing í bolfiskflotanum Auk þess hafi aðrir skattar og opinber gjöld hækkað, þar á meðal kolefnisgjöld og dreifingarkostnaður raforku. „Hærri orkukostnaður veikir samkeppnisstöðu greinarinnar.“ Gunnþór segir að til að mæta samdrætti í aflaheimildum hafi verið farið í hagræðingu í bolfiskflotanum. Tveimur togurum verði lagt og einn tekinn í rekstur í staðinn. Þá hafi verið tilkynnt á liðnu ári um lokun fiskimjölsverksmiðjunnar á Seyðisfirði.

Share this article