Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

SVN greiðir 3ja milljarða arð

Read Full Article →

Á aðalfundi Síldarvinnslunnar hf. var samþykkt að arðgreiðsla á árinu 2026 vegna rekstrarársins 2025 verði 1,67 kr. á hlut eða samtals 3.075 milljónir króna. Fundurinn var haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað og rafrænt í gær. Fundinn sóttu hluthafar fyrir um 88% hlutafjár. Á fundinum var samþykktur ársreikningur Síldarvinnslusamstæðunnar og einnig móðurfélagsreikningur. Starfskjarastefna var samþykkt í óbreyttri mynd og samþykkt að stjórnarlaun vegna ársins 2026 verði eftirfarandi: Formaður verði með kr. 750.000 á mánuði en aðrir stjórnarmenn með kr. 500.000. Varamenn með kr. 250.000 á mánuði. Kosning stjórnar félagsins Í stjórn félagsins voru kjörin Anna Guðmundsdóttir, Baldur Már Helgason, Erla Ósk Wissler Pétursdóttir, Guðmundur Rafnkell Gíslason og Þorsteinn Már Baldursson. Varamenn voru kjörnir Ingi Jóhann Guðmundsson og Katla Þorsteinsdóttir.

Share this article