Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Seldu í SVN fyrir tæpan milljarð

Read Full Article →

Eignarhaldsfélagið Snæfugl ehf., einn stærsti hluthafi Síldarvinnslunnar (SVN), seldi hlutabréf í útgerðarfélaginu fyrir tæplega milljarð króna í apríl, miðað við uppfærðan lista yfir stærstu hluthafa kauphallarfélagsins. Snæfugl er í dag áttundi stærsti hluthafi Síldarvinnslunnar með 52,4 milljónir hluta, eða um 2,84% eignarhlut sem er um 5,8 milljarðar króna að markaðsvirði. Eignarhaldsfélagið minnkaði stöðu sína í SVN um 9,6 milljónir hluta, eða sem samsvarar 0,52% af útgefnu hlutafé útgerðarfélagsins, í síðasta mánuði. Miðað við meðalgengi hlutabréfa SVN í apríl nemur söluverð Snæfugls í mánuðinum 962 milljónum króna. Eignarhaldsfélagið Snæfugl er í meirihlutaeigu Halldórs Jónassonar en Jóhannes Pálsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá SVN, fer með fjórðungshlut. Þá á fjárfestingarfélagið Kaldbakur 15% hlut í Snæfugli og Björgólfur Jóhannsson 5% hlut. Eignarhaldsfélagið Snæfugl hagnaðist um 332 milljónir króna á árinu 2025, samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Eignir félagsins voru bókfærðar á 1,7 milljarða króna og eigið fé á 1,6 milljarða. Snæfugl bókfærir eignarhlut sinn í SVN á kostnaðarverði og nam bókfært virði hans í lok síðasta árs 159 milljónum króna, en markaðsvirði hans nam 6,2 milljörðum króna á sama tíma. Gengi hlutabréfa Síldarvinnslunnar hækkaði umtalsvert á seinni árshelmingi 2025, m.a. vegna loðnuvertíðar. Hlutabréfaverð SVN stendur nú í 111 krónum á hlut en til samanburðar var það í 70 krónum í byrjun ágúst 2025. Stærstu hluthafar SVN í lok apríl Hluthafi Fjöldi hluta Í % Kjálkanes ehf. 296.480.524 16,06 Gildi - lífeyrissjóður 191.113.598 10,35 Samvinnufélag útgerðarm. Neskau 186.476.510 10,10 LSR A-deild 61.126.500 3,31 LIVE 59.773.973 3,24 Brú lífeyrissjóður 54.915.862 2,97 Eignarhaldsfélagið Snæfugl ehf. 52.399.868 2,84 Stapi lífeyrissjóður 49.449.948 2,68 Almenni-Lífsverk lífeyrissjóður 34.299.268 1,86 Festa - lífeyrissjóður 24.731.147 1,34 Marmál ehf. 18.310.227 0,99 Brady ehf. 18.000.000 0,98 Hraunlón ehf. 17.291.530 0,94 Snæból ehf. 16.000.000 0,87 Olíusamlag útvegsmanna Nesk svf 14.293.030 0,77 LSR B-deild 11.274.066 0,61 Dorg ehf. 10.000.000 0,54 Brú R deild 9.810.257 0,53 SDP ehf. 9.796.764 0,53

Share this article