Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Maðurinn fundinn Ásrún Aldís Hreinsdóttir Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir manni mánudagskvöldið 30. mars og óskaði eftir upplýsingum frá almenningi. Í tilkynningu lögreglu að morgni þriðjudagsins 31. mars var greint frá því að hann væri kominn í leitirnar, heill á húfi. Lögregla þakkar veitta aðstoð. RÚV / Birgir Þór Harðarsson NýttMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist „Það var passað upp á að ég færi ekki í Hemma Gunn“ Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á þrennum tónleikum í Hörpu í vikunni. Í viðtali í Rokklandi á Rás 2 fer Víkingur yfir ferilinn og uppvöxtinn sem einkenndst af fleiru en píanóiðkun, til dæmis fótbolta og tölvuleikjum. Fyrir 8 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vill breiða samfylkingu gegn verðbólgu Forseti ASÍ segir að skapast verði breið samfylking um að ná niður vöxtum, verðbólgu og atvinnuleysi. Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins hafa hvatt til nýrrar þjóðarsáttar. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hellisheiði lokaðist vegna umferðaróhapps Brynjólfur Þór Guðmundsson Vegurinn um Hellisheiði lokaðist um klukkan hálf sjö í morgun vegna umferðaróhapps. Fólk getur komið um Þrengslaveg og Sandskeið fram hjá lokuninni. Búið er að opna veginn í vesturátt en hann er enn lokaður til austurs. Krapi og snjóþekja er á mörgum vegum víða um land eftir að lægð með snjókomu gekk hratt yfir landið í morgun. Þæfingur er á Holtavörðuheiði og þungfært yfir Fróðárheiði. Þæfingur er á Vopnafjarðarheiði en snjóþekja og hálka víða á vegum á Norðausturlandi. Vegurinn um Dalsmynni er lokaður og ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði. Fréttin hefur verið uppfærð. Hellisheiði. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Stormur á Austurlandi og Austfjörðum Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum vegna storms í dag. Lægð með snjókomu gengur hratt yfir landið til norðausturs. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Yfir 27.000 erlendir ríkisborgarar í hersveitum Rússa Ríkisborgarar frá 135 löndum hafa barist með rússneska hernum í Úkraínu. Rússar eru sagði hafa byggt upp umfangsmikið ráðningarkerfi fyrir herinn utan Rússlands frá árinu 2023 til að bæta upp fyrir mikið mannfall í hersveitum sínum. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Úkraínsk stjórnvöld hafa beðist afsökunar á drónum sem hröpuðu nærri Kouvola Úkraínskir drónar eru taldir hafa villst af leið vegna truflana frá Rússlandi í gærmorgun. Þeim var ekki undir neinum kringumstæðum ætlað að gera árásir á Finnland, segir úkraínska utanríkisráðuneytið. Drónaárásir á Ust-Luga héldu áfram í nótt. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Haítí Glæpagengi myrti 70 manns í mikilli árás Glæpagengi gekk berserksgang, myrti fólk og brenndi hús í bæ á Mið-Haítí. Óttast er að mannfall geti verið mun meira. Gengjaofbeldi er útbreitt á eyjunni og morð, nauðganir og mannrán eru tíð. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Celine Dion stígur aftur á svið Söngdívan Celine Dion tilkynnti aðdáendum sínum í gær á samfélagsmiðlum að hún myndi halda 10 tónleika í París í haust. Dion hefur að mestu leyti haldið sig utan sviðsljóssins síðustu ár vegna heilsubrests en hún segist hraustari nú. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísraelska þingið samþykkir frumvarp sem heimilar aftöku palestínskra fanga Ísraelska þingið hefur samþykkt frumvarp sem heimilar aftöku Palestínumanna sem dæmdir eru fyrir hryðjuverk í tengslum við mannskæðar árásir. Frumvarpið er umdeilt og hefur þegar verið kært til dómstóla. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árásir á olíuflutningaskip í Dubai Brynja Dögg Friðriksdóttir Árásin á olíuskipið í höfninni er ekki fyrsta árásin sem gerð hefur verið á höfnina í Dubai. Þessi mynd er frá drónaárás sem gerð var á höfnina 1. mars 2026. AP / Fatima Shbair Árás var gerð á olíuflutningaskip sem var bundið við bryggju í höfn í Dubai í gær. Eldur braust út en skipið, Al Salmi, var með fullfermi af hráolíu. Eigandi skipsins, Kuwait Petrolium, heldur því fram að skipið hafi verið skotmark og hefur varað við að olía gæti lekið frá skipinu. Ekkert mannfall varð í árásinni og verið er að meta skemmdir á skipinu. Þá varð annað olíuskip fyrir árás í kvöld en skipið var statt 31 sjómílu fyrir utan Dubai, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK. Flugskeyti hæfði stjórnborða skipsins og eldur kviknaði um borð. Áhöfn skipsins slasaðist ekki í árásinni. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Segir stöðuna alvarlega og kallar eftir samtali um nýja þjóðarsátt Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir stöðu efnahagsmála vera orðna alvarlega og vísar í gömlu þjóðarsáttina; fullt tilefni sé til að skapa breytt samtal í efnahagsmálum og koma á nýrri þjóðarsátt. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Skíði Ólympíufararnir bæði fjórfaldir Íslandsmeistarar Íslandsmótinu í skíðagöngu lauk í dag og lokagreinin var sprettganga. Enn voru ólympíufararnir í fararbroddi. Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson urðu fjórfaldir Íslandsmeistarar. 30. mars 2026 kl. 21:53INNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær 80 börn forskráð í skóla í Grindavík: „Það er ekkert samfélag án barna“ Um áttatíu börn hafa verið forskráð í í leik- og grunnskóla í Grindavík næsta haust, þegar skólastarf hefst þar aftur eftir þriggja ára hlé. Undanfarið hefur verið unnið við að lagfæra skemmdir á skólanum. 30. mars 2026 kl. 21:49ÍÞRÓTTIR Körfubolti Íslandsmeistararnir með sigur í fyrstu viðureign Átta liða úrslit úrslitakeppni kvenna í körfubolta hófst í kvöld með tveimur leikjum. Deildarmeistarar Hauka tóku á móti Stjörnunni og Tindastóll gerði sér ferð til Njarðvíkur. 30. mars 2026 kl. 21:24ÍÞRÓTTIR Handbolti FH sendi Íslandsmeistarana í sumarfrí Tveir leikir voru í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handbolta. FH heimsótti Fram og Afturelding tók á móti Haukum. Hafnarfjarðarliðin leiddu bæði með einum sigri fyrir leiki kvöldsins. 30. mars 2026 kl. 21:05INNLENDAR FRÉTTIR Ferðalög Ferðaþyrstir Íslendingar stefna í sól eða á skíði Þúsundir Íslendinga eru á faraldsfæti um helgina. Flestir stefna suður á bóginn í sól og snemmbúið sumar eða í Alpana á skíði. Bílastæði við Leifsstöð eru að verða full. 30. mars 2026 kl. 20:58INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Solaris segir Guðrúnu hafa haft vitneskju um allt ferlið Samtökin Solaris segja formann Sjálfstæðisflokksins hafa farið með ósannindi um það þegar samtökin komu flóttafólki frá Gaza yfir til Egyptalands og til Íslands. Hún hafi, sem dómsmálaráðherra, haft vitneskju um allt ferlið. 30. mars 2026 kl. 20:51ÍÞRÓTTIR Skák Tabatabaei gerði jafntefli en heldur toppsætinu Spennan magnast á Reykjavíkurmótinu í skák. Næstsíðasta umferð mótsins var leikin í dag og Íraninn Amin Tabatabaei mætti enska Matthew Wadsworth. Þeir skipa toppsætin. 30. mars 2026 kl. 20:30INNLENDAR FRÉTTIR Trúarbrögð Fermingarbörnum fjölgar á ný Fermingar í kirkjum virðast njóta vaxandi vinsælda á ný, eftir að áhugi fermingarbarna á þjóðkirkjunni dvínaði upp úr aldamótum. 30. mars 2026 kl. 19:48ERLENDAR FRÉTTIR Varnarmál Ryðdallar skuggaflotans færast norðar Rússneskt olíuflutningaskip úr skuggaflotanum svokallaða, Indri, hefur haldið sig við og yfir sæstrengnum Írisi, sem liggur á milli Íslands og Írlands, frá því fyrir helgi. Skipið sást fyrst á föstudag rétt utan við efnahagslögsögu Írlands. 30. mars 2026 kl. 19:28INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins fyrir meiðyrði Félagið Solaris hefur stefnt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formanni Sjálfstæðisflokksins, fyrir meiðyrði. Ummælin snúa að aðgerðum Solaris á landamærum Egyptalands og Gaza. 30. mars 2026 kl. 18:30INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögreglunúmerin notuð til að vernda einkalífið en ekki vegna ótta við glæpagengi Fyrir tveimur árum var lögum um meðferð sakamál breytt þannig að lögreglumenn máttu notast við lögreglunúmer við skýrslugerð í stað fulls nafns. Formaður Landssambands lögreglumanna segir þetta lengi hafa verið baráttumál. 30. mars 2026 kl. 17:42INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lögregla varar við svikapóstum frá Skaattinum Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikatölvupósti þar sem líkt er eftir tölvupósti frá Skattinum. Viðtakendur eru beðnir að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á vef sem líkist mjög island.is, en lénið sem kemur upp er skaatturinn.is. „Varist alla tengla sem ykkur eru sendir og lesið slíka pósta með tortryggni. Ef farið er á island.is ekki fara í gegnum tengil heldur skráið ykkur beint,“ segir lögregla og birtir mynd þar sem svikasíðan er sýnd við hlið island.is. Lögreglan „Í þessu tilviki er a) síðan fölsk og það sést þegar netslóðin er skoðuð betur „skaatturin.web.app“ en það er ekki augljóst í upphafi og sést ekki í síma,“ segir í tilkynningu. 30. mars 2026 kl. 17:18INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Síðasta virkni í síma hins látna meðan ákærði var á staðnum Rannsókn lögreglu sýnir að síðasta virknin í síma portúgalsks manns sem fannst látinn á heimili sínu á Kársnesi í nóvember varð meðan félagi hans var heima hjá honum. Sá hefur verið ákærður fyrir manndráp en neitar sök. 30. mars 2026 kl. 16:50INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Þúsundir krefjast afnáms kílómetragjaldsins Yfir 14 þúsund manns hafa skrifað undir kröfu um að kílómetragjaldið verði aflagt. Það sé gallað og óréttlátt. 30. mars 2026 kl. 16:34INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið í Varmahlíð Mæðgin sem ekið var á við söluskála Olís í Varmahlíð í gær voru flutt á Landspítalann. Drengur á fjórða ári er á gjörgæslu en móðir hans undir eftirliti. 30. mars 2026 kl. 16:26INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Grímseyingar komast í ferjuna á ný eftir 10 vikna viðgerð Grímseyjarferjan Sæfari fór í dag sína fyrstu siglingu í rúma tvo mánuði. Tafir voru á viðhaldi og eyjaskeggjar eru ekki sá