Tæplega fertugur breskur ríkisborgari af kínverskum uppruna fær ekki að koma aftur til Íslands um tveggja ára skeið. Hann var staðinn að því að bjóða upp á leiðsögn og akstur í ferðaþjónustu á Íslandi í haust án þess að hafa til þess nauðsynleg leyfi. Svör hans þegar lögregla stóð hann að verki virtust að miklu leyti vera á skjön við raunveruleikann. Maðurinn var stöðvaður á Selfossi þegar hann var á ferð með fimm ferðamenn í hópferðabíl. Lögregla komst þá á snoðir um að maðurinn væri að vinna fyrir sér í ferðaþjónustu án þess að hafa atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi. „Starfsmennirnir“ reyndust vera kínverskir ferðamenn Maðurinn mun hafa gert því skóna við lögreglumenn að fólkið í bílnum væru starfsmenn bresks fyrirtækis sem hann væri að keyra fyrir vinnuveitanda sinn. Vinnuveitandinn reyndist fyrirtæki sem hann átti sjálfur og hinir meintu starfsmenn voru kínverskur vinahópur sem hafði séð þjónustuna auglýsta á þarlendum samfélagsmiðli. Maðurinn sagði jafnframt að hann hefði ekki gert sér grein fyrir því að atvinnuleyfi þyrfti til að bjóða upp á ferðaþjónustu hérlendis. Þó leiddi rannsókn í ljós að maðurinn var þá þegar búinn að leggja fram umsókn um tímabundið atvinnuleyfi en ekki búinn að fá það. Ein ferð varð að ellefu Lögreglumenn spurðu manninn hversu oft hann hefði komið til Íslands og fengu það svar að hann hefði komið til Íslands einu sinni. Þegar þeir flettu í gegnum vegabréf mannsins sást að það hafði verið stimplað sjö sinnum við komuna til Íslands 2023, þegar vegabréfið var gefið út, fjórum sinnum til viðbótar 2024 og loks einu sinni 2025. Maðurinn kvaðst hafa gleymt þessum ferðum og sagðist hafa komið sem ferðamaður að mynda norðurljósin. Lögreglu grunar að hann hafi í þessi ellefu skipti brotið lög með því að veita ferðaþjónustu án atvinnu- og dvalarleyfis. Það var ekki rannsakað sérstaklega og því ekki hægt að slá því föstu. Maðurinn var sektaður fyrir ólöglega atvinnustarfsemi og Útlendingastofnun setti hann í endurkomubann til tveggja ára. Maðurinn andmælti því og leitaði til úrskurðarnefndar um útlendingamál. Hún staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar.