25 ára Svíi má ekki koma aftur til Íslands næstu tíu árin vegna gruns um aðild hans að skipulagðri glæpastarfsemi. Maðurinn er einn þriggja sem voru nýlega ákærðir í annað sinn fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu. Fyrri ákæru vegna sama brots var vísað frá dómi þar sem héraðssaksóknari hafði ekki vald til að ákæra í viðkomandi brotaflokki, eignaspjöllum. Útlendingastofnun ákvað að vísa manninum úr landi og úrskurða hann í 10 ára endurkomubann. Hann hafði sætt lögreglurannsókn í fimm skipti vegna gruns um fjölda brota gegn almennum hegningarlögum. Kærunefnd útlendingamála staðfesti þá ákvörðun og í síðustu viku sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur íslenska ríkið af kröfu mannsins um að endurkomubannið yrði ógilt. Dómurinn var birtur í gær. Maðurinn hefur verið í ítrekuðum samskiptum við meðlimi glæpasamtaka sem hafa verið handteknir hér á landi vegna refsiverðrar háttsemi og stundað skipulagða glæpastarfsemi bæði hér og í Svíþjóð. Í dóminum kemur fram að maðurinn hafi verið hér í stuttan tíma og ekki sýnt mikinn ásetning um að ætla að taka virkan þátt í íslensku samfélagi. Þannig hafi maðurinn framfleytt sér með félagslegri aðstoð frá Reykjavíkurborg og ekki verið skráður í vinnu fyrr en eftir að honum var tilkynnt um hugsanlega brottvísun.