Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Dæmd eftir að grín fór úr böndunum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.4.2026 | 10:26 Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Atvikið var tilkynnt til lögreglu sem hafði síðan uppi á konunni sem var í miklu uppnámi. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt konu í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ekið á mann með þeim afleiðingum að hann slasaðist. Þá mældist áfengi í blóðsýni sem var tekið úr konunni í kjölfar atviksins. Konan var því sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi, ógætilegan akstur í grennd við gangandi vegfarendur og ölvunarakstur. Þá var konan svipt ökuréttindum í einn mánuð. Jafnframt var henni gert að greiða manninum eina milljón króna í miskabætur og 1,7 milljónir kr. í sakarkostnað auk 110.000 kr. sektar í ríkissjóð. Dómurinn féll 10. apríl. Með áfengi í blóðinu Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra gaf út ákæru á hendur konunni í júní. Þar segir að hún hafi verið ákærð fyrir umferðar- og hegningarlagabrot með því að hafa mánudaginn 11. september 2023 verið óhæf til að stjórna ökutæki örugglega vegna áhrifa áfengis (í blóðsýni mældist vínandamagn 0,60‰). Hún hafi ekið bifreið um Engjaveg í Reykjavík fram hjá hópi gangandi vegfarenda án nægilegrar aðgæslu með þeim afleiðingum að hún ók bifreiðinni utan í erlendan mann þannig að hann féll við það og bifreiðin fór yfir vinstri fót hans þannig að hann hlaut áverka á fæti og ökkla. Í lögregluskýrslu, sem er frá 11. september 2023, kom fram að þann dag hafi borist tilkynning um að ekið hefði verið á gangandi vegfaranda við Engjaveg 8 og að hann væri líklega fótbrotinn. Tilgreind er tímasetningin 17.27. Ætlaði að „djóka“ aðeins í þeim Einnig kom fram að ökumaðurinn hefði ekið á brott. Eftir að hafa aflað upplýsinga hjá eiganda bifreiðarinnar um að konan væri ökumaður hennar hafi verið haft samband símleiðis við hana og lögregla í framhaldinu hitt konuna við Kringluna. Hún var þá sjáanlega í miklu uppnámi vegna málsins. Haft var eftir henni að hún hefði verið að aka á Engjavegi þegar hún hafi komið auga á knattspyrnuaðdáendur frá Bosníu og Hersegóvínu en þar hafi margir stuðningsmenn landsliðs landsins verið staddir vegna leiks þess við landslið Íslands. Konan flautaði aðeins á þá til að „djóka“ í þeim og búa til smá „stemningu“. Þeir brugðust hins vegar illa við því og hófu að sparka og slá í bifreiðina með þeim afleiðingum að hægri hliðarspegill hennar skemmdist. Konunni brá svo mikið við þetta og ákvað því að aka frá vettvangi til að koma sér frá „þessum óðu stuðningsmönnum“. Hún kveðst hafa verið í miklu áfalli. Tvö myndbönd á meðal gagna málsins Fram kemur í niðurstöðukafla dómsins að meðal gagna málsins séu tvö myndbönd þar sem bifreið sést ekið utan í fætur tveggja manna. Héraðsdómur segir óumdeilt að konan ók umræddri bifreið og jafnframt að hjól bifreiðarinnar fór yfir hægri fót mannsins. Þá segir að í ákæru hafi verið ranglega staðhæft að það hefði verið vinstri fótur mannsins sem bifreiðin fór yfir en ákæruvaldið leiðrétti það við aðalmeðferð málsins. Á myndböndunum sést að mati dómsins glöggt að konan ók mjög ógætilega í grennd við gangandi vegfarendur. Þá er tekið fram að ekki verði séð af myndböndunum að konunni hafi stafað nein slík ógn af hópnum að þörf hafi verið á að hraða för af vettvangi eins mikið og hún gerði með þeim afleiðingum að hætta skapaðist. Þvert á móti verði ekki annað séð en að hún hefði átt þess kost að bíða með að aka aftur af stað, eftir að hún stöðvaði bifreiðina, þar til vegfarendurnir hefðu vikið úr akstursleiðinni. Héraðsdómur segir einnig að það sem hafi sést á myndböndunum sé í öllum aðalatriðum í samræmi við framburði mannsins og annarra vitna fyrir dómnum. Telja verði að konan hafi með þessari háttsemi sýnt af sér verulegt gáleysi. Glímir við varanlegar afleiðingar af atvikinu Þá bendi læknisfræðileg gögn um líkamstjón mannsins til þess að hann glími við varanlegar afleiðingar af atvikinu, sem m.a. lýsi sér í verkjum í hægri fæti og ökkla við hlaup og göngu um tröppur, auk skertrar hreyfigetu. Vegna þessara einkenna hafi hann verið metinn til 5% læknisfræðilegrar örorku. Þá segir að með niðurstöðu rannsóknar á blóðsýni úr konunni, sem leiddi í ljós að magn vínanda í blóði hennar hefði verið 0,60‰ í umrætt sinn, sé enn fremur sannað að hún hafi gerst sek um brot gegn umferðarlögum. „Engu breytir í þeim efnum þótt hún hafi eftir atvikum ekki fundið til áfengisáhrifa eða talið að ekki væri lengur áfengi í blóði hennar,“ segir í dómi héraðsdóms. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Rússar til í að taka á móti auðguðu úran frá Íran Jarðboranir vinna útboð í Karíbahafi Ungur leikmaður skotinn til bana í liðsrútunni Hagnaður Vinnslustöðvarinnar 1,5 milljarðar 56 ára en væri til í barn á morgun Umræðan Það munar um 800 milljónir Er tekjufall í landbúnaði birtingarmynd árangurs? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ísland á EM eftir stórsigur Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Trump setur á hafnbann við Hormússund „Evrópuhjartað slær kröftugar í Ungverjalandi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Lofað upp í ermina á Alþingi Fólkið mun á endanum gefast upp Kaus í fyrsta skipti 63 ára Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Myndir: Forsetahjónin sáu lokasýningu Birtíngs Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Slydduél um vestanvert landið Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Þekkt leikkona styður Grindavík Nýjast á mbl.is » Rússar til í að taka á móti auðguðu úran frá Íran Jarðboranir vinna útboð í Karíbahafi Ungur leikmaður skotinn til bana í liðsrútunni Hagnaður Vinnslustöðvarinnar 1,5 milljarðar 56 ára en væri til í barn á morgun Umræðan Það munar um 800 milljónir Er tekjufall í landbúnaði birtingarmynd árangurs? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn óður til gjöreyðingar Ísland á EM eftir stórsigur Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Lofað upp í ermina á Alþingi Mest lesið Í gær Í vikunni Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? Lofað upp í ermina á Alþingi Fólkið mun á endanum gefast upp Kaus í fyrsta skipti 63 ára Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Myndir: Forsetahjónin sáu lokasýningu Birtíngs Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Slydduél um vestanvert landið Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Flugstjórinn óskaði eftir breytingu á flugleið Væri ekki leyfilegt innan ESB Lágflugið vekur athygli út fyrir landsteinana Íslendingar illa búnir undir neyðarástand Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Þýðir aðild betri lánakjör á Íslandi? „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Um fimmtíu skjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Þekkt leikkona styður Grindavík

Share this article