Innlent | Morgunblaðið | 31.3.2026 | 8:06 Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Búast má við því að sjá betri meðferðir þróast þegar kemur að því að virkja ónæmiskerfið gegn krabbameini, að sögn Sigurdísar. mbl.is/Anton Brink Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Straumhvörf hafa orðið í meðferð við krabbameini síðustu 10-15 ár, þá sérstaklega í ónæmisörvandi meðferð sem örvar ónæmiskerfið til að ráðast gegn krabbameinsfrumum og má búast við að sjá betri meðferðir þróast. Þá kom nýlega út rannsókn sem sýnir fram á mikilvægi hreyfingar hjá einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein. Þetta er á meðal þess sem kom fram á málþingi sem fór fram í Veröld – húsi Vigdísar síðasta föstudag en málþingið var hluti af fundaröð Háskóla Íslands og Landspítalans, Heilsunni okkar , sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu. Sigurdís Haraldsdóttir, krabbameinslæknir, yfirlæknir og prófessor við Læknadeild HÍ, hélt erindi á málþinginu sem sneri að nýjungum í meðferð við krabbameini og mikilvægi hreyfingar hjá einstaklingum sem hafa greinst með krabbamein. Ráðast gegn krabbameinsfrumum Í samtali við Morgunblaðið segir Sigurdís straumhvörf hafa orðið í meðferðum við krabbameini á síðustu árum, þá sérstaklega vegna tilkomu lyfja í svokölluðum marksæknum meðferðum annars vegar og ónæmisörvandi meðferðum hins vegar. „Þessar marksæknu meðferðir eru lyf sem eru í raun þróuð og byggð á sameindaprófum á krabbameinum þar sem verið er að greina hvort ákveðnar stökkbreytingar drífi áfram krabbamein. Byggt á niðurstöðu sameindaprófs getum við í sumum tilfellum beitt marksæknum meðferðum sem sækja gegn þessum stökkbreytingum,“ segir Sigurdís og heldur áfram: „Síðan eru það þessar ónæmisörvandi meðferðir sem komu til fyrir 10-15 árum. Þær virka gegn ákveðnum tegundum krabbameina og hafa sem dæmi skipt miklu máli í meðferð sortuæxla og lungnakrabbameina. Þetta eru lyf sem í raun örva ónæmiskerfið til þess að ráðast gegn krabbameinsfrumum og drepa þær.“ Þá segir Sigurdís aðspurð að búast megi við að sjá betri meðferðir þegar kemur að því að virkja ónæmiskerfið gegn krabbameini þegar litið er til lengri tíma. „Það eru ýmis ný lyf í lyfjarannsóknum sem tengjast þessu mikið.“ Minni endurkomutíðni Eins og fyrr segir sneri erindi Sigurdísar einnig að mikilvægi hreyfingar hjá einstaklingum sem greinst hafa með krabbamein. Nefnir hún að stór rannsókn hafi komið út síðasta sumar sem gerð var á einstaklingum sem höfðu greinst með ristilkrabbamein á stigi tvö og þrjú, farið í aðgerð og fengið lyfjameðferð. „Tæplega 1.000 manns var slembiraðað. Annaðhvort fékkstu upplýsingar um mikilvægi hreyfingar eða fórst í hóp sem var í virku þjálfunarprógrammi í þrjú ár með þjálfara og æfði af meðalákefð í allavega þrjá klukkutíma í viku. Sá hópur hafði minni endurkomutíðni krabbameinsins, betri lifun og var ólíklegri til að fá aðrar tegundir krabbameina líka.“ „Þetta er svo mikilvægt“ Bendir Sigurdís á að áhrif hreyfingarinnar slagi hátt í það sem sést þegar einstaklingar hljóta viðbótarlyfjameðferð eftir aðgerð. „Þannig að það er bara rosalega mikilvægt að fræða fólk um lífsstílinn og hreyfingu. Við viljum auðvitað gjarnan geta sent fólk í svona þjálfunarprógramm í þrjú ár byggt á þessum niðurstöðum. Þetta er svo mikilvægt,“ segir Sigurdís að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Rekinn stuttu fyrir HM Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Óvænt nafn að taka við Liverpool? Faðir Meghan Markle fann ástina með yngri konu Hálka og þæfingsfærð á höfuðborgarsvæðinu Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar Salman Rushdie fyrirgefur ekki Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsaka netárásir á vefsíður ESB Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Afleit staða til að eiga við faraldur Fyrirhuguð malbikun dugir ekki Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan lýsir eftir manni Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Gekk í skrokk á fyrrverandi kærustu sinni Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Eldur kviknaði í snjómoksturstæki á Hellisheiði „Skynja rosalega mikla reiði“ Héraðsdómur skammar SKE Krefja Guðrúnu um fjórar milljónir vegna meiðyrða Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss Nýjast á mbl.is » Rekinn stuttu fyrir HM Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Óvænt nafn að taka við Liverpool? Faðir Meghan Markle fann ástina með yngri konu Hálka og þæfingsfærð á höfuðborgarsvæðinu Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar Salman Rushdie fyrirgefur ekki Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Runólfur: Nú er lag að lækka kolefnisgjaldið Hvað er svona merkilegt við Kharg-eyju? Fá ekki leyfi til að rífa braggann Samstarf léttir álag á bráðamóttöku Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan lýsir eftir manni Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Gekk í skrokk á fyrrverandi kærustu sinni Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Eldur kviknaði í snjómoksturstæki á Hellisheiði „Skynja rosalega mikla reiði“ Héraðsdómur skammar SKE Krefja Guðrúnu um fjórar milljónir vegna meiðyrða Lögreglan lýsir eftir manni og birtir myndir Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss