Heilbrigðisráðherra segir í skoðun að gera viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn gjaldfrjálsa í upphafi meðferðar. Hún segist ekki geta svarað hvort til greina komi að þjónustan fari fram í apótekum, undir eftirliti lyfjafræðings. Alltaf rukkað fyrir læknisviðtal Í kvöldfréttum sjónvarps á sunnudag var rætt við konu sem hefur fengið viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn í fjögur ár. Hún segist óttast að nýtt gjald fyrir meðferðina, sem tók gildi um mánaðamót, verði til þess að færri nýta sér hana. Þá gagnrýndi hún aðgengi að meðferðinni sem fer fram á Vogi á Stórhöfða í Reykjavík. Hún segir marga eiga erfitt með að fara svo langa vegalengd og kallar eftir því að hægt verði að fá meðferðina á fleiri stöðum. Alma Möller, heilbrigðisráðherra, segir að alltaf hafi verið rukkað fyrir viðtal vegna viðhaldsmeðferða við ópíóíðafíkn. Gjaldið hafi lækkað þegar nýir samningar tóku gildi um mánaðamót. „Það var ellefu þúsund en núna þegar Sjúkratryggingar gerðu samning við SÁÁ, þá var í staðinn sett gjald á allar komur og það er fimm þúsund. Þannig að núna eru þeir sem eru á lyfjameðferð vegna ópíóíðafíknar að greiða eitt slíkt gjald á mánuði.“ Segir meirihlutann ráða við gjaldtökuna Rótin og Matthildur, samtök sem sérhæfa sig í skaðaminnkun, segja viðhaldsmeðferðina ekki í samræmi við lágþröskuldaþjónustu. Rótin sendi áskorun á heilbrigðisráðherra í síðasta mánuði um að fella niður komugjöld og bæta aðgengi að þjónustunni. Alma segir erindið til skoðunar. „Og ég held að þessar fimm þúsund krónur á mánuði — það er meirihluti þeirra sem eru á þessari meðferð sem ræður við það.“ Þó kunni að vera að grípa þurfi til séraðgerða fyrir ákveðna hópa. „Og við munum kalla alla hlutaðeigandi á fund í ráðuneytinu og fara yfir málin. Það gæti komið til greina að það yrði gjaldfrjálst í upphafi meðferðar til dæmis, en þetta verður skoðað.“ „Við skulum ekki gleyma að þetta er heilbrigðisþjónusta sem er sérhæfð“ Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, gagnrýndi fyrirkomulag meðferðarinnar í kvöldfréttum sjónvarps í gær. Hún sagði það galið að fólk sem þurfi á slíkri þjónustu að halda þurfi að mæta svo mörgum þröskuldum innan heilbrigðiskerfisins. Hún leggur til samstarf lyfjafræðinga og Vogs, líkt og tíðkist í til dæmis Noregi, þar sem skjólstæðingar koma í apótek og þiggja lyf undir eftirliti lyfjafræðings. Lyfjafræðingurinn yrði svo í virku samtali um gang meðferðarinnar við Vog. Aðspurð um hvort slík meðferð gæti farið fram á fleiri stöðum en á Vogi segir Alma það þegar þannig. „Viðtalsmeðferðin er veitt annars vegar hjá SÁÁ, sjúkrahúsinu Vogi, og hins vegar á Landspítala. Og það er ákveðinn hluti, allavegana einhverjir tugir þeirra sem nota þessi lyf, sem fá þau afhent í apótekum. Og þá eru skilmerkin þau að fólk sé búið að vera stöðugt í sinni meðferð,“ segir Alma. „Og við skulum ekki gleyma að þetta er meðferð, þetta er heilbrigðisþjónusta sem er sérhæfð. Þetta er ekki bara að afhenda lyf. En það gæti alveg komið til álita að fleiri fengju lyfin afhent í apótekum. Við munum fara yfir þetta vandlega.“ Þannig að það kæmi ekki til greina að lyfjafræðingar sinni þessari viðhaldsmeðferð í samráði við heilbrigðisyfirvöld? „Ég get ekki svarað því núna. Núna er þessi meðferð, þetta er sérhæfð meðferð, henni er vel fyrirkomið á sjúkrahúsinu Vogi þar sem eru miklir sérfræðingar og það er að mjög mörgu að hyggja hjá þessum sjúklingahópi. En um afhendingu lyfjanna gildir annað.“