- What: Concerns raised about access to opioid treatment
- Impact: Healthcare professionals express concerns about cost barriers for patients
Yfirlæknir á Vogi kveðst ekki vita til þess að fólk hafi hætt í viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn vegna kostnaðar. Hún segir að komið sé til móts við skjólstæðinga. Nýr samningur SÁÁ og Sjúkratrygginga Íslands tók gildi 1. febrúar. Með samningnum lækkaði komugjald vegna læknistíma á göngudeild Vogs úr rúmum ellefu þúsund krónum í rúmar fimm þúsund, en á móti var sama gjald sett á komur í lyfjameðferð, sem ekki var áður. „Þeir sem eru veikastir og eru að byrja í meðferðinni eða þurfa einhverra hluta vegna meira aðhald eða fleiri komur, þeir eru líka kannski verr settir félagslega, þannig við höfum haft það bara fyrir reglu að þeir borgar bara einu sinni gjaldið í mánuði,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi. Hún segir að flestum þyki sjálfsagt að taka þátt í kostnaði við lyfjameðferðina. „En svo eru auðvitað margir sem vilja ekki borga neitt og við reynum bara að koma til móts við okkar fólk eins og hægt er og engum er neitað um þjónustu.“ Fréttastofa hefur fjallað um gagnrýni á aðgengi að viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn. Kallað hefur verið eftir því að hægt verði að sækja lyfjameðferð í apótek. Valgerður segir að þeir sem eru ekki í neyslu, og hefur gengið vel í meðferðinni í tvö ár, geti fengið lyfin afhent í apóteki. Aðrir á höfuðborgarsvæðinu þurfi að koma á göngudeild Vogs að Stórhöfða. „Þetta er alltaf spurning um hvar er hægt að veita heilbrigðisþjónustu þannig að það sé faglegt og öruggt. Hvað það kostar að hafa hana á fleiri stöðum miðað við það að aðstoða fólk við að komast þar sem hún er veitt, þetta er nú bara spurning um reikningsdæmi, myndi ég segja.“