Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vilja að komugjöld í viðhaldsmeðferð verði felld niður

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.2.2026 | 22:30 Vilja að komugjöld í viðhaldsmeðferð verði felld niður Áskorunin hefur verið send á Ölmu Möller heilbrigðisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Félagið Rótin hefur skorað á heilbrigðisráðuneytið að endurskoða fyrirkomulag viðhaldsmeðferðar við ópíóíðafíkn, bæði hvað varðar komugjöld og líkamlegt aðgengi að þjónustunni. Í bréfi frá Rótinni til Ölmu Möller heilbrigðisráðherra segir að á Íslandi þurfi fólk í lyfjameðferð við ópíóíðafíkn að greiða fyrir læknaviðtöl. Hluti hópsins hafi ekki greiðslugetu og detti því út úr meðferð, með aukinni áhættu á bakslagi, ofskömmtun, sýkingum og félagslegri hnignun. Við það bætast þröskuldar í líkamlegu aðgengi vegna staðsetningar meðferðarinnar í útjaðri borgarinnar. Afleiðingarnar alvarlegar og fyrirsjáanlegar „Ljóst er að aðgengi að skaðaminnkandi viðhaldsmeðferð sem veitt er af SÁÁ uppfyllir ekki þau skilyrði að vera sú lágþröskulda og skaðaminnkandi þjónusta sem hún ætti sannarlega að vera og of oft hrökklast fólk úr meðferð vegna þess að það á ekki fyrir komugjöldum eða vegna líkamlegs aðgengis. Afleiðingarnar eru alvarlegar og fyrirsjáanlegar, þar á meðal aukin hætta á ofskömmtun og dauðsföllum. Bæði hafa starfskonur Rótarinnar í Konukoti orðið varar við [þetta] og þá hefur starfsfólk í öðrum úrræðum fyrir heimilislausa haft samband við félagið vegna þessa,“ segir í bréfinu. Skapi verulegar aðgangshindranir Þar er aukinheldur bent á að núverandi staðsetning viðhaldsmeðferðar SÁÁ, sem veitt er á Vogi, „í útjaðri Reykjavíkur“, skapi verulegar aðgangshindranir. Alþjóðleg bestu viðmið í skaðaminnkun og ópíóðameðferð leggi áherslu á samfélagsmiðaða og samþætta þjónustu sem staðsett sé nær þeim svæðum þar sem þörfin er mest, til að tryggja samfellu og lágmarka hindranir sem felast í því að þurfa að ferðast langar leiðir til að komast í meðferðina. Sömuleiðis er bent á að núverandi fyrirkomulag leiði til þess að starfsfólk vettvangs- og ráðgjafateymis Reykjavíkurborgar sé mjög bundið til að aka einstaklingum í meðferð. Það dragi úr getu teymisins til annars nauðsynlegrar vettvangsvinnu og undirstriki að þjónustan sé ekki skipulögð í samræmi við meginreglur lágþröskulda skaðaminnkandi þjónustu, þar sem kerfið eigi að laga sig að aðstæðum fólks en ekki öfugt. Vilja að komugjöld verði felld niður Félagið mælist því til þess að komugjöld í viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn verði felld niður hið fyrsta og að endurskoðun fari fram á staðsetningu og skipulagi þjónustunnar með það að markmiði að tryggja raunverulegt líkamlegt aðgengi og samræmi við alþjóðleg viðmið um lágþröskulda skaðaminnkandi þjónustu og rétt til bestu mögulegu heilsu. „Viðhaldsmeðferð er nú þegar í boði á göngudeild geð- og fíknisjúkdóma á LSH fyrir þröngt skilgreindan hóp. Einföld leið til að leysa vandann væri að útvíkka þá þjónustu fyrir stærri hóp og fella niður komugjöld eins og gert hefur verið í Laufeyjarteymi LSH. Núverandi fyrirkomulag stenst ekki kröfur um efnislegt jafnræði, fjárhagslegt og líkamlegt aðgengi, meðferðin er í útjaðri Reykjavíkur og óþarfa hamlandi þröskuldur fyrir notendur, né jákvæðar skyldur ríkisins samkvæmt stjórnarskrá og alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum Íslands. Þá er hún ekki í samræmi við meginmarkmið heilbrigðisstefnu um að veita rétta þjónustu á réttum stað,“ segir í bréfinu. Bréfið má lesa í heild sinni hér. 94 ára William Shatner gefur út þungarokksplötu Til marks um mikinn áhuga fólks á málefninu Óli P. Ólsen látinn Kría Freysdóttir sigraði með Daydream Vilja að komugjöld í viðhaldsmeðferð verði felld niður Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Andrew laus en enn til rannsóknar Trump fór mikinn í Hvíta húsinu „Það var bara allt á floti“ Piparúða beitt gegn ungum dreng Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Hættir sem bæjarstjóri „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum 94 ára William Shatner gefur út þungarokksplötu Til marks um mikinn áhuga fólks á málefninu Óli P. Ólsen látinn Kría Freysdóttir sigraði með Daydream Vilja að komugjöld í viðhaldsmeðferð verði felld niður Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Verra en árið 1992 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Friðarráð Trumps fundar í fyrsta sinn Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Hættir sem bæjarstjóri „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article