Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Dæmi um að fólk með ópíóíðafíkn hætti í meðferð vegna komugjalda

  • What: A society advocating for people with addiction issues is urging the Minister of Health in Iceland to eliminate co-payments for maintenance treatment of opioid addiction.
  • Impact: The society claims that people are dropping out of treatment due to the cost, which is counterproductive to harm reduction efforts.
Read Full Article →

Rótin, félag um málefni fólks með fíknivanda, hefur sent áskorun til heilbrigðisráðherra um að falla frá komugjöldum í viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn hjá SÁÁ á Vogi. „Við erum að sjá og heyra að fólk er að detta út úr þessari meðferð út af því að það þarf að greiða komugjöld fyrir meðferðina,“ segir Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra Rótarinnar. „Við teljum að það sé afskaplega óheppilegt og ekki í samræmi við svona lágþröskuldaþjónustu og skaðaminnkandi þjónustu,“ bætir Kristín við. Hún segir að fólk borgi 17 þúsund krónur fyrir komu og læknisviðtal. Önnur Evrópulönd, Noregur, Finnland og Bretland hafi minnkað eða fellt niður kostnað við meðferð við ópíóðafíkn og niðurstaðan sé að brotthvarf úr meðferðinni minnki. „Markmiðið hlýtur alltaf að vera að halda fólki í meðferðinni og gera allt til þess. Þetta er ekkert rosalega stór hópur þannig þetta er ekki gríðarlegur kostnaður fyrir kerfið en rosalega mikilvægt fyrir þennan litla hóp,“ segir Kristín. Lágþröskuldaþjónusta miði að því að vera eins aðgengileg og hægt er, Sjúkrahúsið Vogur er staðsett á Stórhöfða 45 í Reykjavík. „Vorteymi Reykjavíkurborgar, vettvangsteymið fyrir fólk sem er heimilislaust eða með flókinn eða margþættan vanda, það er upptekið eiginlega tvo daga í viku við að koma fólki upp á Vog og það er rosalega léleg nýting á þeirri þjónustu,“ segir hún. Í áskorun Rótarinnar til heilbrigðisráðherra er lagt til að þjónusta sem nú þegar er í boði á göngudeild geð- og fíknisjúkdóma á Landspítalanum verði útvíkkuð fyrir stærri hóp. „Hvatning til að skoða úrræðin, hvaða þröskuldar eru og hvernig er hægt að losna við þá,“ segir hún.

Share this article