Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Árni nýr stjórnar­for­maður Ís­lands­stofu

  • What: New board members appointed to Icelandic Chamber of Commerce
  • Impact: Leadership changes in Icelandic business organization
Read Full Article →

Nýtt stjórnarfólk tók sæti í stjórn Íslandsstofu á aðalfundi sem fram fór 18. mars síðastliðinn. Árni Sigurjónsson hefur tekið við sem stjórnarformaður. Hann er framkvæmdastjóri JBT Marel ehf. og VP Government & External Affairs hjá félaginu, en hann hefur starfað hjá Marel og síðar JBT Marel frá árinu 2009. Árni var formaður Samtaka iðnaðarins árin 2020 til 2026 og hefur átt sæti í stjórn og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins frá 2016. Árni er stjórnarformaður fasteignafélagsins Reita, á sæti í Háskólaráði Háskólans í Reykjavík. Hann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands og meistaraprófi í fjármála- og félagarétti frá London School of Economics and Political Science (LSE). „Íslenskt hagkerfi byggir á útflutningi og hlutverk Íslandsstofu er að vinna með öllum útflutningsgreinum að því að auka hann. Á undanförnum árum hefur fjölbreytni í útflutningi aukist og samsetning útflutnings því breyst frá fyrri tíð, sem hefur rennt stoðum undir aukinn stöðugleika í íslenska hagkerfinu,“ segir Árni. „Ég er afar spenntur að taka við sem formaður stjórnar Íslandsstofu á þeim áhugaverðu tímum sem framundan eru í öllum fjórum stoðum útflutnings; sjávarafurðum, hugverkaiðnaði, ferðaþjónustu og orkusæknum iðnaði. Hjá Íslandsstofu starfar öflugur hópur sem ég hlakka til að vinna með að þeim verkefnum sem framundan eru.“ Sigríður Mogensen tekur einnig sæti í stjórninni. Hún er sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins og situr í ráðgjafarnefnd EFTA og EES, stjórnum KLAK – Icelandic Startups og Nýsköpunarsjóðsins Kríu. Sigríður er með B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. í reikningshaldi og fjármálum frá London School of Economics (LSE). Samhliða þessum breytingum gengu þær Hildur Árnadóttir, fráfarandi formaður, og Ásthildur Otharsdóttir úr stjórn Íslandsstofu, en þær höfðu báðar setið í stjórninni í átta ár.

Share this article