Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Bílar festust á Hellisheiði Mist Þormóðsdóttir Grönvold Hellisheiði var lokað í austurátt í morgun vegna umferðaróhapps og í vesturátt vegna bíla sem sátu fastir á heiðinni. Þrengslum var lokað vegna bíls sem þveraði veg. „Það eru bílar fastir hérna og svo lenti snjóruðningstæki í vandræðum fyrr í morgun. Hér er skafrenningur og blint a köflum,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Ekki liggur fyrir hvenær vegirnir verða opnaðir að nýju. Hellisheiði. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Heilagur Pétur í Vikunni Rapparinn St. Pete tróð upp í Vikunni hjá Gísla Marteini á Akureyri. Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Holtavörðuheiði lokaðist Brynjólfur Þór Guðmundsson Hringvegurinn um Holtavörðuheiðin lokaðist á tíunda tímanum vegna erfiðrar færðar. Fram að því hafði verið þæfingur á veginum. Lægð með snjókomu hefur gengið allhratt norðaustur yfir landið í morgun og víða kyngt niður snjó. Snjómokstur á Holtavörðuheiði. Safnmynd. RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon Fyrir 25 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf „Ég þakka guði mínum að þetta fólk þarna á Alþingi sé ekki að reka fyrirtækið mitt“ Eigandi Skógarbaðanna á Akureyri segir fyrirhugaða hækkun á virðisaukaskatti á baðlón helst leggjast á heimamenn þar sem þeir séu meirihluti gesta. Ómögulegt sé að reka ferðaþjónustufyrirtæki án fyrirsjánleika í aðgerðum stjórnvalda. Fyrir 37 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Meira en helmingur auglýsingafjár fer til útlendra miðla Auglýsingatekjur erlendra fyrirtækja á Íslandi 26-földuðust á fimmtán árum. Á sama tíma jukust auglýsingatekjur íslenskra fyrirtækja um átta prósent. Fyrir 58 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þingforsetar og utanríkisráðherrar minnast voðaverkanna í Bucha Forsetar um tuttugu þjóðþinga í Evrópu, þar á meðal Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis, eru nú í Bucha í Úkraínu þar sem minnst er voðaverka rússneskra hersveita fyrir fjórum árum. Hópur evrópskra utanríkisráðherra er einnig í Bucha. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Færri ferðir strætisvagna um páskana Strætisvagnar á höfuðborgarsvæðinu ganga á sunnudagsáætlun flesta daga yfir páskana. Nokkrir landsbyggðarstrætisvagnar hætta að ganga og dregið er úr akstri í Reykjanesbæ og á Akureyri. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Skutu á fullhlaðið olíuskip í höfn Brynjólfur Þór Guðmundsson Eldur kviknaði í stóru olíuflutningaskipi í höfn í Dúbaí í morgun þegar Íranar gerðu árás á höfnina. Enginn særðist í árásinni og búið er að slökkva eldinn. Yfirvöld segja að olía hafi ekki lekið úr skipinu. KUNA, fréttastofan í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sagði að skipið hefði verið fullhlaðið af olíu þar sem það lá í skipalægi við höfnina þegar árásin var gerð. Talið er að skipið hafi orðið fyrir árás dróna. Um það leyti sem skipið var hæft stóð yfir árás þar sem Íranar beittu drónum og eldflaugum. Eldur stígur upp af höfn í árás á Dúbaí fyrr í mánuðinum. EPA / Stringer Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist „Það var passað upp á að ég færi ekki í Hemma Gunn“ Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á þrennum tónleikum í Hörpu í vikunni. Í viðtali í Rokklandi á Rás 2 fer Víkingur yfir ferilinn og uppvöxtinn sem einkenndst af fleiru en píanóiðkun, til dæmis fótbolta og tölvuleikjum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vill breiða samfylkingu gegn verðbólgu Forseti ASÍ segir að skapast verði breið samfylking um að ná niður vöxtum, verðbólgu og atvinnuleysi. Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins hafa hvatt til nýrrar þjóðarsáttar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hellisheiði lokaðist vegna umferðaróhapps Brynjólfur Þór Guðmundsson Vegurinn um Hellisheiði lokaðist um klukkan hálf sjö í morgun vegna umferðaróhapps. Fólk getur komið um Þrengslaveg og Sandskeið fram hjá lokuninni. Búið er að opna veginn í vesturátt en hann er enn lokaður til austurs. Krapi og snjóþekja er á mörgum vegum víða um land eftir að lægð með snjókomu gekk hratt yfir landið í morgun. Þæfingur er á Holtavörðuheiði og þungfært yfir Fróðárheiði. Þæfingur er á Vopnafjarðarheiði en snjóþekja og hálka víða á vegum á Norðausturlandi. Vegurinn um Dalsmynni er lokaður og ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði. Fréttin hefur verið uppfærð. Hellisheiði. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Stormur á Austurlandi og Austfjörðum Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum vegna storms í dag. Lægð með snjókomu gengur hratt yfir landið til norðausturs. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Yfir 27.000 erlendir ríkisborgarar í hersveitum Rússa Ríkisborgarar frá 135 löndum hafa barist með rússneska hernum í Úkraínu. Rússar eru sagði hafa byggt upp umfangsmikið ráðningarkerfi fyrir herinn utan Rússlands frá árinu 2023 til að bæta upp fyrir mikið mannfall í hersveitum sínum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Úkraínsk stjórnvöld hafa beðist afsökunar á drónum sem hröpuðu nærri Kouvola Úkraínskir drónar eru taldir hafa villst af leið vegna truflana frá Rússlandi í gærmorgun. Þeim var ekki undir neinum kringumstæðum ætlað að gera árásir á Finnland, segir úkraínska utanríkisráðuneytið. Drónaárásir á Ust-Luga héldu áfram í nótt. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Haítí Glæpagengi myrti 70 manns í mikilli árás Glæpagengi gekk berserksgang, myrti fólk og brenndi hús í bæ á Mið-Haítí. Óttast er að mannfall geti verið mun meira. Gengjaofbeldi er útbreitt á eyjunni og morð, nauðganir og mannrán eru tíð. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Celine Dion stígur aftur á svið Söngdívan Celine Dion tilkynnti aðdáendum sínum í gær á samfélagsmiðlum að hún myndi halda 10 tónleika í París í haust. Dion hefur að mestu leyti haldið sig utan sviðsljóssins síðustu ár vegna heilsubrests en hún segist hraustari nú. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísraelska þingið samþykkir frumvarp sem heimilar aftöku palestínskra fanga Ísraelska þingið hefur samþykkt frumvarp sem heimilar aftöku Palestínumanna sem dæmdir eru fyrir hryðjuverk í tengslum við mannskæðar árásir. Frumvarpið er umdeilt og hefur þegar verið kært til dómstóla. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árásir á olíuflutningaskip í Dubai Brynja Dögg Friðriksdóttir Árásin á olíuskipið í höfninni er ekki fyrsta árásin sem gerð hefur verið á höfnina í Dubai. Þessi mynd er frá drónaárás sem gerð var á höfnina 1. mars 2026. AP / Fatima Shbair Árás var gerð á olíuflutningaskip sem var bundið við bryggju í höfn í Dubai í gær. Eldur braust út en skipið, Al Salmi, var með fullfermi af hráolíu. Eigandi skipsins, Kuwait Petrolium, heldur því fram að skipið hafi verið skotmark og hefur varað við að olía gæti lekið frá skipinu. Ekkert mannfall varð í árásinni og verið er að meta skemmdir á skipinu. Þá varð annað olíuskip fyrir árás í kvöld en skipið var statt 31 sjómílu fyrir utan Dubai, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK. Flugskeyti hæfði stjórnborða skipsins og eldur kviknaði um borð. Áhöfn skipsins slasaðist ekki í árásinni. 30. mars 2026 kl. 23:23INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Maðurinn fundinn Ásrún Aldís Hreinsdóttir Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir manni mánudagskvöldið 30. mars og óskaði eftir upplýsingum frá almenningi. Í tilkynningu lögreglu að morgni þriðjudagsins 31. mars var greint frá því að hann væri kominn í leitirnar, heill á húfi. Lögregla þakkar veitta aðstoð. RÚV / Birgir Þór Harðarsson 30. mars 2026 kl. 22:45INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Segir stöðuna alvarlega og kallar eftir samtali um nýja þjóðarsátt Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir stöðu efnahagsmála vera orðna alvarlega og vísar í gömlu þjóðarsáttina; fullt tilefni sé til að skapa breytt samtal í efnahagsmálum og koma á nýrri þjóðarsátt. 30. mars 2026 kl. 22:01ÍÞRÓTTIR Skíði Ólympíufararnir bæði fjórfaldir Íslandsmeistarar Íslandsmótinu í skíðagöngu lauk í dag og lokagreinin var sprettganga. Enn voru ólympíufararnir í fararbroddi. Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson urðu fjórfaldir Íslandsmeistarar. 30. mars 2026 kl. 21:53INNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær 80 börn forskráð í skóla í Grindavík: „Það er ekkert samfélag án barna“ Um áttatíu börn hafa verið forskráð í í leik- og grunnskóla í Grindavík næsta haust, þegar skólastarf hefst þar aftur eftir þriggja ára hlé. Undanfarið hefur verið unnið við að lagfæra skemmdir á skólanum. 30. mars 2026 kl. 21:49ÍÞRÓTTIR Körfubolti Íslandsmeistararnir með sigur í fyrstu viðureign Átta liða úrslit úrslitakeppni kvenna í körfubolta hófst í kvöld með tveimur leikjum. Deildarmeistarar Hauka tóku á móti Stjörnunni og Tindastóll gerði sér ferð til Njarðvíkur. 30. mars 2026 kl. 21:24ÍÞRÓTTIR Handbolti FH sendi Íslandsmeistarana í sumarfrí Tveir leikir voru í úrslitakeppni Olísdeildar karla í handbolta. FH heimsótti Fram og Afturelding tók á móti Haukum. Hafnarfjarðarliðin leiddu bæði með einum sigri fyrir leiki kvöldsins. 30. mars 2026 kl. 21:05INNLENDAR FRÉTTIR Ferðalög Ferðaþyrstir Íslendingar stefna í sól eða á skíði Þúsundir Íslendinga eru á faraldsfæti um helgina. Flestir stefna suður á bóginn í sól og snemmbúið sumar eða í Alpana á skíði. Bílastæði við Leifsstöð eru að verða full. 30. mars 2026 kl. 20:58INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Solaris segir Guðrúnu hafa haft vitneskju um allt ferlið Samtökin Solaris segja formann Sjálfstæðisflokksins hafa farið með ósannindi um það þegar samtökin komu flóttafólki frá Gaza yfir til Egyptalands og til Íslands. Hún hafi, sem dómsmálaráðherra, haft vitneskju um allt ferlið. 30. mars 2026 kl. 20:51ÍÞRÓTTIR Skák Tabatabaei gerði jafntefli en heldur toppsætinu Spennan magnast á Reykjavíkurmótinu í skák. Næstsíðasta umferð mótsins var leikin í dag og Íraninn Ami