Vegurinn um Hellisheiði var lokaður í á aðra klukkustund vegna umferðaróhappa og fjölda bifreiða sem lentu utan vegar. Tveir tveggja bíla árekstrar urðu skammt frá skíðaskálanum í Hveradölum á öðrum tímanum, samkvæmt lögreglu, og fréttamaður RÚV sem er á vettvangi segist hafa séð minnst átta bíla utan vegar. Magnús Ragnarsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir þrjá hafa verið flutta til skoðunar á sjúkrahús. Hann segir björgunarsveitir mættar á staðinn til að aðstoða vegfarendur. Mjög slæm akstursskilyrði eru á heiðinni, hálka, skafrenningur og blint. Fréttin hefur verið uppfærð.