Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ætlaði að skála í þinginu fyrir dauðarefsingum Palestínumanna

  • What: Israel's parliament passed a law allowing the death penalty for those who support terrorism
  • Impact: The law applies specifically to Palestinians
Read Full Article →

Ísraelska þingið samþykkti í gær að taka upp dauðarefsingu yfir þeim sem fremja hryðjuverk gegn Ísrael. Nýju lögin gilda þó aðeins um Palestínumenn og enga aðra. Það brutust út fagnaðarlæti á þinginu í gær þegar niðurstaða atkvæðagreiðslunnar um frumvarpið varð ljós. Það var var samþykkt með nokkrum naumindum og Itamar Ben-Gvir, stuðningsmaður þess og einn hægrisinnaðasti ráðherrann í ríkisstjórn Netanjahús – sem vel að merkja greiddi atkvæði með frumvarpinu – reyndi að opna freyðivínsflösku til að skála. Þingverðir stukku til og komu í veg fyrir það, þó ekki með slíkum látum að gullslegna snaran sem Ben-Gvir bar í jakkaboðungnum skekktist. Fleiri stuðningsmenn frumvarpsins báru sama barmmerki við afgreiðslu málsins í þinginu í gær.

Share this article