Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Búið að opna Holtavörðuheiði

  • What: Holtavörðuheiði road has been reopened
  • Impact: The road was closed due to heavy snow and may be closed again
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Búið að opna Holta­vörðu­heiði Brynjólfur Þór Guðmundsson Hringvegurinn um Holtavörðuheiðin lokaðist á tíunda tímanum vegna erfiðrar færðar. Fram að því hafði verið þæfingur á veginum. Búið er að opna veginn en hann er á óvissustigi vegna óveðurs og gæti lokast aftur með stuttum fyrirvara. Lægð með snjókomu hefur gengið allhratt norðaustur yfir landið í morgun og víða kyngt niður snjó. Snjómokstur á Holtavörðuheiði. Safnmynd. RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon Fyrir 1 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Laus undan þrýst­ingi ugl­unn­ar eftir þúsund daga í röð Leiklistarnemi hélt veislu til að fagna eitt þúsund dögum í röð í tungumálakennsluforritinu Duolingo. Hún gerði sína síðustu æfingu fyrir framan vini og vandamenn á laugardag og hefur nú sagt skilið við ugluna umdeildu. Fyrir 15 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ætlaði að skála í þing­inu fyrir dauða­refs­ing­um Palest­ínu­manna Itamar Ben-Gvir, stuðningsmaður nýrra laga um dauðarefsingu sem einungis verður beitt gegn Palestínumönnum, ætlaði að skála þegar ísraelska þingið afgreiddi málið. Fyrir 15 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Í tveggja vikna gæslu­varð­hald vegna um­fangs­mik­ils smygls Maður var staðinn að smygli á umtalsverðu magni fíkniefna þegar hann kom á bíl með Norrænu á föstudag. Hann hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald. Fyrir 29 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Tyrkland Ocalan vill ávarpa tyrk­nesku þjóð­ina óhindr­að Stofnandi PKK, sem setið hefur í fangelsi í nærri 30 ár í Tyrklandi, vill fá að ávarpa tyrknesku þjóðina óhindrað til að fyrirbyggja misskilning og ítreka skuldbindingu sína við friðarferlið. PKK lagði niður vopn í fyrra eftir 40 ára baráttu. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Heil­ag­ur Pétur í Vik­unni Rapparinn St. Pete tróð upp í Vikunni hjá Gísla Marteini á Akureyri. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf „Ég þakka guði mínum að þetta fólk þarna á Al­þingi sé ekki að reka fyr­ir­tæk­ið mitt“ Eigandi Skógarbaðanna á Akureyri segir fyrirhugaða hækkun á virðisaukaskatti á baðlón helst leggjast á heimamenn þar sem þeir séu meirihluti gesta. Ómögulegt sé að reka ferðaþjónustufyrirtæki án fyrirsjánleika í aðgerðum stjórnvalda. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Bílar fest­ust á Hell­is­heiði Mist Þormóðsdóttir Grönvold Hellisheiði var lokað í morgun. Veginum var lokað í austurátt vegna umferðaróhapps og í vesturátt vegna bíla sem sátu fastir á heiðinni. Þrengslum var lokað vegna bíls sem þveraði veg. „Það eru bílar fastir hérna og svo lenti snjóruðningstæki í vandræðum fyrr í morgun. Hér er skafrenningur og blint a köflum,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi. Hellisheiði var opnuð á ný um klukkan 10 en enn er lokað um Þrengsli. Hellisheiði. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Fjölmiðlar Meira en helm­ing­ur aug­lýs­inga­fjár fer til út­lendra miðla Auglýsingatekjur erlendra fyrirtækja á Íslandi 26-földuðust á fimmtán árum. Á sama tíma jukust auglýsingatekjur íslenskra fyrirtækja um átta prósent. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Þing­for­set­ar og ut­an­rík­is­ráð­herr­ar minn­ast voða­verk­anna í Bucha Forsetar um tuttugu þjóðþinga í Evrópu, þar á meðal Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis, eru nú í Bucha í Úkraínu þar sem minnst er voðaverka rússneskra hersveita fyrir fjórum árum. Hópur evrópskra utanríkisráðherra er einnig í Bucha. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Færri ferðir stræt­is­vagna um pásk­ana Strætisvagnar á höfuðborgarsvæðinu ganga á sunnudagsáætlun flesta daga yfir páskana. Nokkrir landsbyggðarstrætisvagnar hætta að ganga og dregið er úr akstri í Reykjanesbæ og á Akureyri. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Skutu á full­hlað­ið ol­íu­skip í höfn Brynjólfur Þór Guðmundsson Eldur kviknaði í stóru olíuflutningaskipi í höfn í Dúbaí í morgun þegar Íranar gerðu árás á höfnina. Enginn særðist í árásinni og búið er að slökkva eldinn. Yfirvöld segja að olía hafi ekki lekið úr skipinu. KUNA, fréttastofan í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sagði að skipið hefði verið fullhlaðið af olíu þar sem það lá í skipalægi við höfnina þegar árásin var gerð. Talið er að skipið hafi orðið fyrir árás dróna. Um það leyti sem skipið var hæft stóð yfir árás þar sem Íranar beittu drónum og eldflaugum. Eldur stígur upp af höfn í árás á Dúbaí fyrr í mánuðinum. EPA / Stringer Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist „Það var passað upp á að ég færi ekki í Hemma Gunn“ Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á þrennum tónleikum í Hörpu í vikunni. Í viðtali í Rokklandi á Rás 2 fer Víkingur yfir ferilinn og uppvöxtinn sem einkenndst af fleiru en píanóiðkun, til dæmis fótbolta og tölvuleikjum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Vill breiða sam­fylk­ingu gegn verð­bólgu Forseti ASÍ segir að skapast verði breið samfylking um að ná niður vöxtum, verðbólgu og atvinnuleysi. Forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins hafa hvatt til nýrrar þjóðarsáttar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Hell­is­heiði lok­að­ist vegna um­ferð­ar­óhapps Brynjólfur Þór Guðmundsson Vegurinn um Hellisheiði lokaðist um klukkan hálf sjö í morgun vegna umferðaróhapps. Fólk getur komið um Þrengslaveg og Sandskeið fram hjá lokuninni. Búið er að opna veginn í vesturátt en hann er enn lokaður til austurs. Krapi og snjóþekja er á mörgum vegum víða um land eftir að lægð með snjókomu gekk hratt yfir landið í morgun. Þæfingur er á Holtavörðuheiði og þungfært yfir Fróðárheiði. Þæfingur er á Vopnafjarðarheiði en snjóþekja og hálka víða á vegum á Norðausturlandi. Vegurinn um Dalsmynni er lokaður og ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði. Fréttin hefur verið uppfærð. Hellisheiði. Safnmynd. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Storm­ur á Aust­ur­landi og Aust­fjörð­um Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Austurlandi að Glettingi og Austfjörðum vegna storms í dag. Lægð með snjókomu gengur hratt yfir landið til norðausturs. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Yfir 27.000 er­lend­ir rík­is­borg­arar í her­sveit­um Rússa Ríkisborgarar frá 135 löndum hafa barist með rússneska hernum í Úkraínu. Rússar eru sagði hafa byggt upp umfangsmikið ráðningarkerfi fyrir herinn utan Rússlands frá árinu 2023 til að bæta upp fyrir mikið mannfall í hersveitum sínum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Úkra­ínsk stjórn­völd hafa beðist af­sök­un­ar á drónum sem hröp­uðu nærri Kouv­ola Úkraínskir drónar eru taldir hafa villst af leið vegna truflana frá Rússlandi í gærmorgun. Þeim var ekki undir neinum kringumstæðum ætlað að gera árásir á Finnland, segir úkraínska utanríkisráðuneytið. Drónaárásir á Ust-Luga héldu áfram í nótt. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Haítí Glæpa­gengi myrti 70 manns í mik­illi árás Glæpagengi gekk berserksgang, myrti fólk og brenndi hús í bæ á Mið-Haítí. Óttast er að mannfall geti verið mun meira. Gengjaofbeldi er útbreitt á eyjunni og morð, nauðganir og mannrán eru tíð. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Celine Dion stígur aftur á svið Söngdívan Celine Dion tilkynnti aðdáendum sínum í gær á samfélagsmiðlum að hún myndi halda 10 tónleika í París í haust. Dion hefur að mestu leyti haldið sig utan sviðsljóssins síðustu ár vegna heilsubrests en hún segist hraustari nú. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Ísra­elska þingið sam­þykk­ir frum­varp sem heim­il­ar aftöku palest­ínskra fanga Ísraelska þingið hefur samþykkt frumvarp sem heimilar aftöku Palestínumanna sem dæmdir eru fyrir hryðjuverk í tengslum við mannskæðar árásir. Frumvarpið er umdeilt og hefur þegar verið kært til dómstóla. 31. mars 2026 kl. 0:40ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Árásir á ol­íu­flutn­inga­skip í Dubai Brynja Dögg Friðriksdóttir Árásin á olíuskipið í höfninni er ekki fyrsta árásin sem gerð hefur verið á höfnina í Dubai. Þessi mynd er frá drónaárás sem gerð var á höfnina 1. mars 2026. AP / Fatima Shbair Árás var gerð á olíuflutningaskip sem var bundið við bryggju í höfn í Dubai í gær. Eldur braust út en skipið, Al Salmi, var með fullfermi af hráolíu. Eigandi skipsins, Kuwait Petrolium, heldur því fram að skipið hafi verið skotmark og hefur varað við að olía gæti lekið frá skipinu. Ekkert mannfall varð í árásinni og verið er að meta skemmdir á skipinu. Þá varð annað olíuskip fyrir árás í kvöld en skipið var statt 31 sjómílu fyrir utan Dubai, samkvæmt norska ríkisútvarpinu NRK. Flugskeyti hæfði stjórnborða skipsins og eldur kviknaði um borð. Áhöfn skipsins slasaðist ekki í árásinni. 30. mars 2026 kl. 23:23INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Mað­ur­inn fund­inn Ásrún Aldís Hreinsdóttir Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir manni mánudagskvöldið 30. mars og óskaði eftir upplýsingum frá almenningi. Í tilkynningu lögreglu að morgni þriðjudagsins 31. mars var greint frá því að hann væri kominn í leitirnar, heill á húfi. Lögregla þakkar veitta aðstoð. RÚV / Birgir Þór Harðarsson 30. mars 2026 kl. 22:45INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Segir stöð­una al­var­lega og kallar eftir sam­tali um nýja þjóð­ar­sátt Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir stöðu efnahagsmála vera orðna alvarlega og vísar í gömlu þjóðarsáttina; fullt tilefni sé til að skapa breytt samtal í efnahagsmálum og koma á nýrri þjóðarsátt. 30. mars 2026 kl. 22:01ÍÞRÓTTIR Skíði Ól­ymp­íu­fararn­ir bæði fjór­fald­ir Ís­lands­meist­arar Íslandsmótinu í skíðagöngu lauk í dag og lokagreinin var sprettganga. Enn voru ólympíufararnir í fararbroddi. Kristrún Guðnadóttir og Dagur Benediktsson urðu fjórfaldir Íslandsmeistarar. 30. mars 2026 kl. 21:53INNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær 80 börn for­skráð í skóla í Grinda­vík: „Það er ekkert sam­fé­lag án barna“ Um áttatíu börn hafa verið forskráð í í leik- og grunnskóla í Grindavík næsta haust, þegar skólastarf hefst þar aftur eftir þriggja ára hlé. Undanfarið hefur verið unnið við að lagfæra skemmdir á skólanum. 30. mars 2026 kl. 2

Share this article