Vignir Vatnar Stefánsson varð efstur Íslendinga á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Vignir endaði í 23. sæti með sex vinninga af níu möguleikum. Fyrir mótið var hann 25. sterkasti keppandinn samkvæmt ELO-stigastyrkleikaröðuninni. Íraninn Amin Tabatabaei vann mótið með átta vinninga en hann var með sjö og hálfan vinning fyrir lokaskákina. Þurfti hann því að forðast tap en gerði að lokum jafntefli við Danann Mads Andersen. Viðtal við Amin og myndefni frá lokadegi mótsins má sjá hér að neðan. Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu lauk í dag. Vignir Vatnar Stefánsson endaði efstur Íslendinga í 23. sæti. Íraninn Amin Tabatabaei vann mótið með átta vinninga af níu. Amin missti af kjörnu tækifæri til að hafa skákina en að lokum bauð hann Mads jafntefli enda sammæltust þeir um að endataflið væri dautt. Tabatabaei lauk mótinu ósigraður en um tíma leit út fyrir að hann yrði sá fyrsti í sögu mótsins til að vinna öll einvígi sín. Að lokum var hann með sjö vinninga og tvö jafntefli. Hér má sjá heildar niðurstöðu mótsins.