„Þetta er mesta veisla sem við skákmenn höfum. Þetta er okkar árshátíð. Ég vaknaði til dæmis bara hoppandi af gleði, ég var svo spenntur að koma og tefla,“ segir stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson um Reykjavíkurskákmótið sem hófst í gær. Vignir er stigahæsti íslenski skákmaðurinn og sá 25. hæsti yfir alla keppendur mótsins með 2511 elo stig. Hann byrjaði mótið vel og vann sína fyrstu skák sem var við Peter Jakubek frá Slóvakíu en sá er með 2098 elo stig. Hann hitaði vel upp fyrir mótið þegar hann kom, sá og sigraði hraðskáksmótið Harpa Blitz í vikunni. „Ég er í góðum gír og að vinna hraðskáksmótið skemmir ekki fyrir. Það var virkilega gaman að vinna það. Ég held að ég sé fyrsti Íslendingurinn sem vinnur þetta mót. En nú byrjar alvaran.“ Reykjavíkurskákmótið hófst í Hörpu í gær. Mótið hefur notið vaxandi vinsælda á undanförnum árum og nú eru um 430 skákmenn skráðir til leiks frá 50 löndum. Vignir Vatnar Stefánsson er stigahæsti Íslendingurinn á mótinu. Íslenskur sigur í fyrsta sinn síðan 2010? Vignir segir mótið virkilega sterkt í ár enda hefur það notið vaxandi vinsælda. „Ég er spenntur að sjá hvað maður getur gert gegn þessum sterku atvinnumönnum.“ Hannes Hlífar Stefánsson, sem einnig keppir á mótinu núna, er síðasti Íslendingurinn til að vinna mótið en það gerðist árið 2010. Vignir segir það löngu tímabært að við fáum að sjá íslenskan sigur á mótinu. „Ég veit þó ekki hvenær það kemur, ég ætla að taka eina skák í einu og svo sjáum við til hvar maður endar.“ Stærsta opna mótið? Vignir segir mótið eitt það stærsta í heiminum af opnum skákmótum, ef ekki það stærsta. Á mótinu eru 430 skákmenn skráðir til leiks frá 50 löndum. „Þetta er bara galið. Það er gífurlegur áhugi. Það er líka svo fallegt í þessu að það er alveg sama hvort þú ert 1500 stiga Bandaríkjamaður sem hefur aldrei teflt áður eða atvinnumaður í skák. Þetta er bara opið öllum. Þetta er virkilega sérstakt mót.“ „Ég vona að ég nái að standa mig eins vel og ég get á mótinu og standi undir pressunni.“ Fallegur draumur um framtíðina Vignir stefnir á Evrópumót einstaklinga í apríl og er jafnframt sjálfur að halda skákmót víða. En þegar horft er fimm ár fram í tímann stendur Vignir í þeirri von um að unga kynslóðin verði búin að ryðja sér til rúms í skákheiminum. „Ég vona að ég verði ekki á fyrsta borði í landsliðinu. Ég vona að það verði komin ung kynslóð sem verður farin að banka á dyrnar og stríða mér aðeins. Þetta er fallegur draumur, ég sé það fyrir mér einn daginn að vera á fjórða borði í landsliðinu.“ Vignir vonast til að rík skáksaga Íslendinga fái að blómstra enn frekar.