Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Miðlar skila­boðum á milli hins jarðneska lífs og hand­an­heima

Read Full Article →

Innlent | mbl | 31.3.2026 | 22:40 Miðlar skila­boðum á milli hins jarðneska lífs og hand­an­heima Ásthildur Hannesdóttir - [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu „Ég fór út í aðstæður sem voru ekki í lagi“ Hálfgert sjokk eftir flutningana frá Íslandi Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar Geta ekki sagt „full og varanleg“ » Fleiri tengdar fréttir Valgerður Bachmann hefur starfað við andleg málefni frá árinu 2009 en fram að þeim tíma hafði hún reynt að þráast við og falið það að vera gædd skyggnigáfu sem hún segist hafa búið yfir frá unga aldri. Margir líta á slíkt sem sérstakan hæfileika en það gerir Valgerður þó ekki. Held­ur lítur hún einfaldlega á skyggnigáfuna sem hluta af sjálfi henn­ar. „Þetta er bara ég. Svona er ég bara,“ seg­ir Val­gerður sem lít­ur meira á sig sem eins kon­ar millistykki sem miðlar skila­boðum á milli hins jarðneska lífs og hand­an­heima og leiðbein­anda sem aðstoðar fólk við að finna sín­ar eig­in leiðir og lausn­ir. Svör hennar eru því ekki alltaf afdráttarlaus heldur eitthvað sem henni ber að koma til skila á milli tveggja ólíkra heima, sama hvort hún skilji skilaboðin eða ekki. „Stundum skil ég þetta ekki sjálf,“ segir hún. „En það er ekki mitt hlutverk að skilja, heldur að miðla.“ Fólk forvitið um framtíðina af ótta við að gera mistök Valgerður var gestur í Dagmálum á dögunum þar sem hún ræddi við Ásthildi Hannesdóttur um spá­miðlun, skyggni­lýs­ing­ar og ýmis kon­ar and­leg mál­efni. Samhliða því að vera spámiðill, jógakennari, reikimeistari og höfuðbeina- og spjaldhryggjarjafnari heldur Valgerður úti vefsíðunni alheimsorka.is en hún er einnig grafískur hönnuður að mennt, hefur gefið út spil og skrifað barnabækur. Þegar Valgerður er spurð út í forvitni fólks um framtíðina og hvað hún mögulega geti borið í sér segir hún svarið liggja í mannlegu eðli þar sem við reynum að koma í veg fyrir að gera mistök. „Við viljum ekki gera mistök,“ segir hún. „Þarna kemur líka hugsunin sem getur verið svo ótrúlega mögnuð; Ef ég geri þetta svona, eru þetta þá stór mistök eða lítil mistök, hvað á fólk þá eftir að segja, hvernig lítur þetta út,“ lýsir hún og ekki er laust við að lýsing hennar líkist einhvers konar ofhugsun. „Okkur langar alltaf að standa okkur, í þeirri mynd sem við sjáum sjálf, því það er enginn annar sem gerir kröfur til okkar heldur en við sjálf.“ Hún segir fólk oft koma til sín ekki endilega til að fá svör, heldur einhvers konar staðfestingu á því að það sé á réttri leið. Þá kemur að hlutverki Valgerðar sem leiðbeinanda eða millistykkis, líkt og hún kýs að kalla það. „Ég get ekki sagt fólki hvað það getur gert eða hvernig það getur lagað það. En þau geta aftur á móti gert það,“ segir Valgerður og vísar þar með til þeirra framliðnu sem geta verið þeim sem eru í líkama ákveðinn vegvísir. Eins og að horfa á líf fólks í gegnum Netflix Það verður ekki annað sagt en að mikil dulúð búi yfir málefnum af þessum toga. Margir hafa efasemdir um að skyggnigáfa sé yfirhöfuð eitthvað fyrirbæri sem er til. Öðrum þykir fyrirbærið forvitnilegt, spennandi og áhugavert á meðan enn aðrir líta á það sem haldbæra leiðsögn lífsins. Að mati Valgerðar eiga allar þessar hugmyndir rétt á sér. En með hvaða hætti berast og birtast henni þessi skilaboð til viðkomandi? Til að einfalda málið notar Valgerður gjarnan nútímalega myndlíkingu til að útskýra það sem best svo flestir skilji. „Ef þetta væri einkatími og þú værir hjá mér þá myndi ég segja þér að hérna væri skjár og að þú ættir að ímynda þér að þetta væri eins og Netflix. Ég fer þá bara inn á þinn aðgang og svo bara horfi ég,“ útskýrir Valgerður. „Stundum fæ ég að sjá fólk í útlínum, stundum fæ ég að sjá bara þennan part, stundum fæ ég að sjá svipbrigði, stundum fæ ég að sjá hvernig manneskjan labbar, stundum fæ ég að upplifa sömu tilfinningar sem manneskjan er að upplifa,“ lýsir hún og á þá við sýn sína og upplifanir í gegnum manneskjurnar sem fallnar eru frá. Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast viðtalið við Valgerði í heild sinni. „Ég er millistykki“ Tengdar fréttir Dagmál 210 milljarðar í sjóinn með Borgarlínu „Ég fór út í aðstæður sem voru ekki í lagi“ Hálfgert sjokk eftir flutningana frá Íslandi Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar Geta ekki sagt „full og varanleg“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hollenskur liðstyrkur í Val Miðlar skila­boðum á milli hins jarðneska lífs og hand­an­heima Megan Fox lokar á fyrrverandi kærasta Interpol á eftir forsetanum Ljóst hverjum Ísland mætir Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar Salman Rushdie fyrirgefur ekki Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Innviðaskuldin er svo mikil“ Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Þöggunartilburðir aðgerðasinna þekkt stef Tilbúinn í samstarf við alla flokka Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Lögreglan lýsir eftir manni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » Hollenskur liðstyrkur í Val Miðlar skila­boðum á milli hins jarðneska lífs og hand­an­heima Megan Fox lokar á fyrrverandi kærasta Interpol á eftir forsetanum Ljóst hverjum Ísland mætir Umræðan Fjármálastjórn ríkis og Reykjavíkurborgar Salman Rushdie fyrirgefur ekki Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Runólfur: Nú er lag að lækka kolefnisgjaldið Flutti umtalsvert magn fíkniefna með Norrænu Nærri 30.000 manns skrifað undir Vonast til að létta verulega á Landspítalanum Mest lesið Í gær Í vikunni Rukka fyrir vanskráningu á morgun Natan farinn í meðferð Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp Mannleg mistök og brotið yfirstaðið Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Lögreglan lýsir eftir manni Straumhvörf orðið í krabbameinsmeðferð Hækkanir á farmiðum eru viðbúnar Hélt að verið væri að hrekkja sig Ekki til umræðu að nýta sérhæfingu Klíníkurinnar Lögreglan lýsir eftir manni Hópur ferðamanna setti allt í vasana Vitnum boðin áfallahjálp „Skynja rosalega mikla reiði“ Fá ekki leyfi til að rífa braggann Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Þriggja ára drengur á gjörgæslu eftir slysið Þúsundir undirskrifta gegn kílómetragjaldi Slysið komið á borð rannsóknarnefndar Sterkar vindhviður og krefjandi akstursskilyrði Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Daði Már fékk uppsagnarbréf Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Hópur ferðamanna setti allt í vasana

Share this article